
Handkastið hefur verið leiðandi í umfjöllun um íslenskan handbolta síðustu ár. Handkastið heldur úti tveimur hlaðvarpsþáttum í viku þegar tímabilið er í gangi auk þess að fjalla vel og ítarlega um allt sem tengist íslenska boltanum hér á vefnum. Olís-deild karla hófst á fimmtudaginn og hefur Handkastið hitað upp fyrir deildina og fjalla um öll liðin í deildinni. Í dag förum við yfir ÍBV. Síðasta tímabil: Þjálfarinn: Breytingar: Fylgist með: Framtíðin: Sjá einnig:
Tímabilið í fyrra hjá ÍBV var vægast sagt vonbrigði. Liðinu var sópað út í 8 liða úrslitum í einvígi við KA um Íslandsmeistaratitilinn og einnig komst liðið ekki í Final 4 í bikarkeppninni á Ásvöllum þetta árið.
Erlingur Richardsson tók við liðinu af Magnúsi Stefánssyni og fékk Sigurð Bragason sér til halds og traust fyrir tímabilið í fyrra. Það þarf ekki að taka fram hversu sterkur þjálfari Erlingur er og þekkir hann Eyjuna betur en flestir.
Töluverðar breytingar eru á liði ÍBV frá síðustu leiktíð. Ísak Rafnsson og Nökkvi Snær Óðinsson eru hættir ásamt því að Andri Erlingsson er kominn í atvinnumennsku og Hákon Daði Styrmisson samdi ekki áfram við Eyjamenn og fór í Mosfellsbæinn. Eini leikmaðurinn sem ÍBV hefur sótt í sumar er Atli Steinn Arnarson en hann kemur til liðsins frá Gróttu. Jakob Ingi Stefánsson sleit krossband í fyrra svo hann ætti nú að vera nánast eins og nýr leikmaður þegar hann kemur til baka.
Lykilmenn:
Daníel Þór Ingason, Petar Jokanovic, Dagur Arnarsson
Anton Frans Sigurðsson er hægri hornamaður ÍBV sem fékk stórt hlutverk á síðustu leiktíð og nýtti það vel. Hann átti gott mót með íslenska U18 ára landsliðinu á EM í sumar og nú er komið að því að tengja saman annað tímabil í meistaraflokki. Lunkinn, marka gráðugur og með mikla orku. Gæti tekið næsta skref á sínum ferli á komandi tímabili.
Sigmundur Gísli Unnarsson og Morgan Goði Garner eru tveir ungur og efnilegir markverðir í herbúðum ÍBV sem báðir voru í U18 ára landsliðinu sem lék á Evrópumótinu í sumar. Það er ekki oft sem tveir markmenn úr sama félaginu leika í sama yngri landsliðinu. Petar Jokanovic er að sjálfsögðu númer eitt, en þessir tveir eru klárlega framtíðin í Eyjum.
Við hverju má búast:
Eyjamenn urðu fyrir mikilli blóðtöku á dögunum þegar Elís Þór Aðalsteinsson sleit krossband í verkefni með 20 ára landsliði Íslands. Hafandi misst lykilmenn úr hópnum frá því í fyrra gæti þetta tímabil reynst erfitt fyrir Eyjamenn sem eru þunnskipaðir. Það mun mikið mæða á eldri og reyndari leikmönnum liðsins og verður Daníel Þór Ingason að eiga betra tímabil en í fyrra en ÍBV ætla sér að gera eitthvað í vetur. Það vita allir hversu mikilvæg markvarsla og varnarleikur er í handbolta og mun hún verða enn mikilvægari fyrir Eyjamenn í vetur. Á sama tíma fá yngri leikmenn Eyjunnar einnig stærra hlutverk í liðinu og ef ÍBV hefur sýnt okkur eitthvað undanfarin ár, er að þeir kunna að búa til leikmenn.
Umfjöllun um kvenna HK
Umfjöllun um kvennalið Selfoss
Umfjöllun um kvennalið Fram
Umfjöllun um kvennalið Stjörnunnar
Umfjöllun um karlalið Hauka
Umfjöllun um karlalið Fram
Umfjöllun um karlalið KA
Umfjöllun um karlalið Stjörnunnar
Umfjöllun um kvennalið Gróttu
Umfjöllun um karlalið FH
Umfjöllun um karlalið HK
Umfjöllun um kvennalið ÍBV
Umfjöllun um kvennalið Hauka
Umfjöllun um kvennalið Vals
Umfjöllun um kvennalið KA/Þórs
Umfjöllun um karlalið Selfoss
Umfjöllun um karlalið Víkings
Umfjöllun um karlalið Þórs
Umfjöllun um karlalið Aftureldingar
Umfjöllun um karlalið Vals
Umfjöllun um kvennalið ÍR

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.