
Handkastið hefur verið leiðandi í umfjöllun um íslenskan handbolta síðustu ár og nú fer að styttast í að tímabilið hér heima fari af stað. Handkastið heldur úti tveimur hlaðvarpsþáttum í viku þegar tímabilið er í gangi auk þess að fjalla vel og ítarlega um allt sem tengist íslenska boltanum hér á vefnum. Olís-deild kvenna hefst í dag og hefur Handkastið verið að hita upp fyrir deildina og fjallað um öll liðin í deildinni. Í dag förum við yfir nýliða HK. Síðasta tímabil: Þjálfarinn: Breytingar: Fylgist með: Sjá einnig:
HK vann Grill 66 deildina í fyrra eftir harða keppni við Gróttu. Liðið var mjög sannfærandi og verður spennandi að sjá liðið í efstu deild.
Dagur Snær Steingrímsson er á sínu fyrsta tímabil sem aðalþjálfari meistaraflokks en hann var í fjölda ára með Ágústi Jóhannssyni með kvennalið Vals og varð meðal annars Evrópumeistari með liðinu. Hann hefur einnig stýrt U liði Vals í Grill 66 deildinni til margra ára.
Elísabet Millý Elísabetardóttir kom aftur heim í HK en hún er uppalin þar og mun því liðið hafa tvo unglingalandsliðsmarkmenn í henni og Danijelu Björgu. Annars er liðið nær óbreytt frá því í fyrra en þær munu einnig endurheimta Önnu Valdísi Garðarsdóttur sem sleit krossband undir lok þarsíðasta tímabils.
Lykilmenn:
Anna Valdís Garðardóttir, Sóley Ívarsdóttir og Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir
Tinna Ósk Gunnardóttir og Hekla Sóley Halldórsdóttir eru báðar fæddar árið 2008 og eru í U18 ára landsliði Íslands. Þær eru báðar öflugar skyttur og verður spennandi að sjá þær í Olís deildinni.
Framtíðin:
Auk Tinnu og Heklu er Inga Fanney Hauksdóttir ung og efnileg skytta en hún er árinu eldri en hinar. Hefur verið í stóru hlutverki hjá HK undanfarin ár en fær nú tækifæri til að spila í deild þeirra bestu.
Við hverju má búast:
HK mun þurfa að fóta sig í efstu deild en búast má við að liðið verði í báráttu um sæti í úrslitakeppninni.
Umfjöllun um kvennalið HK
Umfjöllun um kvennalið Fram
Umfjöllun um kvennalið Stjörnunnar
Umfjöllun um karlalið Hauka
Umfjöllun um karlalið Fram
Umfjöllun um karlalið KA
Umfjöllun um karlalið Stjörnunnar
Umfjöllun um kvennalið Gróttu
Umfjöllun um karlalið FH
Umfjöllun um karlalið HK
Umfjöllun um kvennalið ÍBV
Umfjöllun um kvennalið Hauka
Umfjöllun um kvennalið Vals
Umfjöllun um kvennalið KA/Þórs
Umfjöllun um karlalið Selfoss
Umfjöllun um karlalið Víkings
Umfjöllun um karlalið Þórs
Umfjöllun um karlalið Aftureldingar
Umfjöllun um karlalið Vals
Umfjöllun um kvennalið ÍR

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.