Ímyndið ykkur þennan rússíbana – Ótrúlegustu úrslit síðari ára
Sigurður Ástgeirsson

„Ímyndið ykkur þennan rússíbana,“ sagði Sérfræðingurinn í nýjasta þætti Handkastsins þegar farið var yfir ótrúlegan sigur Selfoss gegn Val í 1. umferð Olís-deildar kvenna um helgina.

Selfoss vann afar sannfærandi sigur á Hlíðarenda gegn þreföldum meisturum Vals, aðeins níu dögum eftir að ljóst varð að liðið myndi yfirhöfuð leika í Olís-deildinni í vetur.

Sérfræðingurinn rifjaði upp ótrúlega atburðarás síðustu mánaða hjá Selfyssingum, allt frá fallbaráttunni síðasta vor til sigursins gegn Val.

„Ímyndið ykkur þennan rússíbana, hvernig þær falla á síðustu leiktíð á ótrúlegan hátt. Þær vinna Stjörnuna í þriðju síðustu umferðinni og senda Stjörnuna í botnsætið. Stjarnan þurfti tvö stig til að komast upp fyrir Selfoss, sem þær gera, á meðan Selfoss tapar í lokaumferðinni gegn ÍR með tíu mörkum og ÍR hafði um ekkert að keppa.“

„Á sama tíma tekur Stefán Arnarson leikhlé á lokasekúndunni í leik Hauka og Stjörnunnar og kemur í veg fyrir að Haukar vinni þann leik og bjargar þar með Stjörnunni.“

Selfoss fór þannig frá því að vinna Stjörnuna og virðast hafa náð undirtökunum í fallbaráttunni yfir í að falla úr Olís-deildinni skömmu síðar.

„Frá því að vinna Stjörnuna einn laugardaginn í það að falla viku seinna. Síðan kemur ársþingið og þar fá þær möguleika á að fara upp um deild ef Víkingur, sem flestir töldu að myndi ekki þiggja sætið sitt.“

Sú von virtist um tíma vera úr sögunni þegar Víkingur þáði sætið en aðeins níu dögum fyrir upphaf Olís-deildarinnar dró félagið lið sitt úr keppni. Selfoss fékk sætið og skyndilega var liðið aftur komið á meðal þeirra bestu. Og fyrsta verkefnið gat varla verið stærra.

„Síðan fjarar undan því en níu dögum fyrir mót eru þær mættar í Olís og fyrsti leikur gegn Íslands-, deildar- og bikarmeisturum Vals og þú ert kominn tíu mörkum yfir í seinni hálfleik.“

Sérfræðingurinn setti úrslitin í samhengi við fleiri óvænt úrslit sem hafa litið dagsins ljós í evrópskum handbolta síðustu daga.

„Við erum búin að verða vitni að tapi Álaborgar á heimavelli gegn Fredericia, tapi HØJ í dönsku 1. deildinni. Þetta hljóta að vera ótrúlegustu úrslit síðari ára.“

Stymmi klippari tók í sama streng og benti á hversu miklir favorítar Valskonur voru fyrir leik.

„Þetta er galið. Ég get sagt fólki, sem finnst gaman að veðja á leiki, að það var boðið upp á fjögurra prósenta ávöxtun á sigur Vals. Þú hefðir getað geymt peninginn inni á bankabók og grætt meira á því heldur en að veðja á Valssigur. Selfoss stútaði þessum leik.“

Kristinn Björgúlfsson, Kiddi Bomba, sagði niðurstöðuna hafa komið öllum í opna skjöldu.

„Þetta eru ótrúleg úrslit og það var enginn sem bjóst við þessu. Sama hvernig við horfum á þetta þá var enginn sem gerði ráð fyrir að Selfoss myndi vinna þennan leik,“ sagði Kiddi.

Selfyssingar hafa því farið í gegnum ótrúlegan rússíbana á örfáum mánuðum. Frá því að virðast hafa bjargað sér frá falli, falla síðan úr Olís-deildinni, undirbúa sig fyrir Grill 66-deildina, fá sæti meðal þeirra bestu með níu daga fyrirvara og mæta síðan þreföldum meisturum Vals á Hlíðarenda og vinna.

Selfoss fær Gróttu í heimsókn í 2.umferð Olís-deildar kvenna næstkomandi föstudag á heimavelli og gera má ráð fyrir hörkuleik á Selfossi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top