Ný Meistaradeild fer af stað – fjöldi Íslendinga í baráttunni
Ronny HARTMANN / AFP

Meistaradeild Evrópu fer af stað á miðvikudaginn og verður keppnin með töluvert öðru sniði en undanfarin ár. Liðunum hefur verið fjölgað úr 16 í 24 og íslenskir handboltaáhugamenn hafa nóg að fylgjast með enda fjölmargir Íslendingar í eldlínunni hjá stærstu félagsliðum Evrópu.

Stærsta breytingin er riðlakeppnin. Liðunum 24 hefur verið skipt í sex fjögurra liða riðla og leika liðin heima og að heiman, samtals sex leiki hvert. Tvö efstu lið hvers riðils halda áfram í milliriðla Meistaradeildarinnar en liðin sem enda í þriðja og fjórða sæti færast niður í Evrópudeildina.

Keppnin hefst á morgun og strax fyrsta kvöldið eru nokkrir afar áhugaverðir leikir á dagskrá.

A-riðill

Veszprém, Füchse Berlin, Porto og Partizan

Þorsteinn Leó Gunnarsson og félagar í Porto fá verðugt verkefni strax í 1. umferð þegar þeir heimsækja Veszprém. Füchse Berlin, sem lék til úrslita í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð, byrjar hins vegar keppni á fimmtudaginn með útileik gegn Partizan í Belgrad.

B-riðill

Nantes, Melsungen, Wisła Płock og Vardar

B-riðillinn er gríðarlega jafn á pappírnum og þar verður sömuleiðis íslenskt yfirbragð. Nantes, Evrópudeildarmeistarar Melsungen og pólsku meistararnir Wisła Płock eru meðal liðanna sem berjast um tvö sæti áfram ásamt Vardar frá Norður-Makedóníu. Með Melsungen leikur Reynir Þór Stefánsson.

C-riðill

Álaborg, Paris Saint-Germain, Zagreb og Celje

Álaborg fær strax stórleik í 1. umferð þegar franska stórliðið Paris Saint-Germain kemur í heimsókn til Álaborgar á miðvikudaginn. Álaborg komst alla leið í undanúrslit Meistaradeildarinnar á síðasta tímabili og verður aftur eitt þeirra liða sem gera atlögu að sæti í Final4. Með Paris Saint-Germain leikur landsliðsmaðurinn, Bjarki Már Elísson.

D-riðill

Sporting, Pick Szeged, GOG og Kristianstad

Orri Freyr Þorkelsson og félagar í Sporting eru í áhugaverðum riðli með Pick Szeged, GOG og sænska liðinu Kristianstad. Sporting hefur verið á mikilli uppleið undanfarin ár og verður spennandi að sjá hvort portúgalska liðið geti tekið næsta skref á meðal þeirra bestu í Evrópu. Sporting mætir GOG í 1.umferðinni á meðan Íslendingalið, Kristianstad heimsækir Pick Szeged. Með Kristianstad leika, Ólafur Guðmundsson, Einar Bragi Aðalsteinsson, Andri Erlingsson og Baldur Fritz Bjarnason. Aðstoðarþjálfari liðsins er síðan, Gunnar Steinn Jónsson.

E-riðill

Barcelona, Montpellier, Dinamo Búkarest og Skanderborg

Janus Daði Smárason og Viktor Gísli Hallgrímsson hefja Meistaradeildina með ríkjandi meisturum Barcelona. Barcelona byrjar titilvörnina á heimavelli gegn nýliðum SAH á miðvikudagskvöld. Með Skanderborg leikur Kristján Örn Kristjánsson.

F-riðill

Magdeburg, Kielce, Kolstad og Kriens-Luzern

Gera má fastlega ráð fyrir því að Magdeburg og Kielce fari auðveldlega uppúr F-riðli keppninnar. Magdeburg heimsækir Kolstad í 1.umferðinni. Ómar Ingi Magnússon, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Elvar Örn Jónsson eru í herbúðum Magdeburg.

Magdeburg hefur farið vel af stað í Þýskalandi þrátt fyrir að Ómar Ingi hafi misst af síðustu tveimur leikjum vegna veikinda. Það verður því sérstaklega áhugavert að sjá hvort landsliðsfyrirliðinn verði klár í slaginn þegar Meistaradeildin hefst.

Kielce og Kriens-Luzern eru hin liðin í riðlinum en svissneska liðið er að leika í Meistaradeildinni í fyrsta sinn.

Gjörbreytt leið að Final4

Aðeins tvö af fjórum liðum hvers riðils halda áfram í Meistaradeildinni og riðlakeppninni lýkur strax 29. október.

Þá taka milliriðlarnir við í nóvember áður en keppnin færist nær útsláttarkeppninni og að lokum Final4.

Fyrsta umferðin hefst klukkan 16:45 að íslenskum tíma á miðvikudaginn. Meðal fyrstu leikja eru Veszprém–Porto, Aalborg–PSG, Zagreb–Celje og Kielce–Kriens-Luzern.

Það verður því strax nóg að fylgjast með fyrir íslenska handboltaáhugamenn þegar nýtt tímabil í stærstu félagsliðakeppni heims fer af stað. Meistaradeildin er sýnd í beinni á Livey.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top