Karabatic útilokar þjálfarastarf í bili
Sameer AL-DOUMY / AFP

Nikola Karabatic, einn besti handknattleiksmaður sögunnar, segist ekki sjá fyrir sér að fara út í þjálfun að svo stöddu.

Karabatic lagði skóna á hilluna eftir Ólympíuleikana í París sumarið 2024, þar sem hann lék sína síðustu leiki með franska landsliðinu eftir einstakan feril.

Karabatic, sem er 42 ára, hefur síðan þá varið meiri tíma með fjölskyldunni en sést reglulega á íþróttaviðburðum og meðal annars í stúkunni á leikjum Paris Saint-Germain, þar sem hann lék síðustu níu ár ferilsins.

Þrátt fyrir gríðarlega reynslu og þekkingu á handboltanum virðist þjálfarastarfið ekki heilla hann eins og staðan er í dag.

„Að verða þjálfari er ekki á dagskrá hjá mér eins og er,“ sagði Karabatic í samtali við franska íþróttamiðilinn L'Équipe.

Karabatic lokaði þó ekki endanlega á að snúa aftur inn í handboltaheiminn í öðru hlutverki síðar meir. Hvert næsta skref hans innan íþróttarinnar verður, og hvenær það verður tekið, á því eftir að koma í ljós.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top