Taldi dómarinn vitlaust? – Lið Rúnars rænt sigurmarki
Tom Weller /AFP

HSG Wetzlar, undir stjórn Rúnars Sigtryggssonar, hefur boðað kæru vegna úrslita leiks liðsins gegn Eisenach í þýsku Bundesligunni í gærkvöldi. Wetzlar taldi sig hafa skorað sigurmarkið á lokasekúndunum en markið var dæmt af vegna leiktafa og nú er spurningin einfaldlega hvort dómararnir hafi talið vitlaust.

Wetzlar og Eisenach gerðu 31-31 jafntefli í Buderus Arena í gærkvöldi. Úrslitin þýða að lið Rúnars fékk sitt fyrsta stig á tímabilinu eftir töp í fyrstu tveimur umferðunum. Stigin hefðu þó hæglega getað orðið tvö.

Wetzlar fékk boltann þegar um 40 sekúndur voru eftir í stöðunni 31-31. Dómararnir lyftu fljótlega hendinni og gáfu merki um leiktöf, sem þýddi að Wetzlar mátti gefa fjórar sendingar áður en liðið þurfti að ljúka sókninni með skoti.

Þegar um tíu sekúndur voru eftir fékk Nikolaj Læsø boltann og skoraði það sem virtist vera sigurmark Wetzlar, 32-31. Fögnuður heimamanna stóð hins vegar stutt.

Dómararnir töldu sendinguna á Læsø vera fimmtu sendinguna eftir að merki um leiktöf var gefið og dæmdu því markið af. Wetzlar er ósammála þeirri talningu og telur að sendingin á Læsø hafi aðeins verið sú fjórða og markið því átt að standa.

Michael Allendorf, íþróttastjóri Wetzlar, staðfesti eftir leik að félagið hygðist kæra niðurstöðuna.

Við teljum að síðasta sendingin á Nikolaj hafi verið fjórða sendingin og því hefði ekki átt að flauta sóknina af vegna leiktafa. Þess vegna höfum við boðað kæru,“ sagði Allendorf.

Málið er sérstaklega svekkjandi fyrir Wetzlar í ljósi erfiðrar byrjunar liðsins á tímabilinu. Lið Rúnars tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum, 35-33 gegn Bietigheim og 31-27 gegn Lemgo, og var því án stiga fyrir leikinn gegn Eisenach.

Wetzlar leiddi 15-12 í hálfleik en Eisenach sneri leiknum sér í hag eftir hlé. Gestirnir voru tveimur mörkum yfir, 29-27, þegar rúmar fimm mínútur voru eftir en Rúnar breytti þá vörn Wetzlar í 5-1. Breytingin skilaði árangri og heimamenn sneru stöðunni í 31-30 áður en Eisenach jafnaði.

Svo kom umdeilda atvikið á lokasekúndunum.

„Þetta varð að lokum þessi jafni leikur sem maður mátti í raun búast við,“ sagði Rúnar eftir leikinn.

Wetzlar stendur því með eitt stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar og næsta verkefni liðsins verður ekki af auðveldari gerðinni. Lið Rúnars heimsækir þýsku meistarana í Magdeburg á sunnudaginn.

Hvort Wetzlar fær eitthvað út úr kærunni á eftir að koma í ljós en þýskir miðlar telja litlar líkur á að úrslitum leiksins verði breytt.

Myndskeið af umdeilda atvikinu má sjá hér fyrir neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top