Grótta ekki í neinum vandræðum í Virkinu
Eyjólfur Garðarsson

Í dag mættust Víkingur 2 og Grótta í Virkinu (Safamýri) í Grill 66 deild karla.

Gróttu menn gáfu fljótlega tóninn og voru mun betri aðilinn í fyrri hálfleik. Náðu þeir mest 6 marka forskoti. Hálfleikstölur voru 11-15 fyrir gestina frá Seltjarnarnesi.

Eftir 15 mínútna leik í seinni hálfleik var staðan orðin orðin 15-25 fyrir gestina. Þeir slökuðu ekkert á og unnu leikinn með 14 marka mun. 19-33 urðu lokatölur.

Grótta byrjar tímabilið vel og það er ljóst á spilamennsku þeirra að þeir eru til alls líklegir í deildinni í vetur.

Sæþór Atlason var markahæstur hjá Gróttu með 8 mörk og Hannes Pétur Hauksson varði 17 skot.

Hjá Víking 2 var Benedikt Emil Aðalsteinsson markahæstur með 5 mörk og Hilmar Ingason varði 16 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top