ÍR-ingar unnu í Mosó eftir krappan dans
Sævar Jónasson

Í dag mættust Hvíti Riddarinn og ÍR í Myntkaup höllinni í Mosfellsbæ í Grill 66 deild karla.

ÍR-ingar áttu fljúgandi start á leiknum og komust í 5-0. Mest náðu þeir 7 marka forskoti í fyrri hálfleik og voru þeir einfaldlega mun betri. Hálfleikstölur voru svo 11-17 og útlitið mjög gott fyrir ÍR-inga.

Í seinni hálfleik héldu ÍR-ingar forskotinu áfram en smátt og smátt náðu Mosfellingar að saxa á forskotið hægt og rólega. Þegar 10 mínútur voru eftir af leiknum jafnaði Kristján Andri Finnsson í 27-27 og skyndilega orðin mikil spenna.

Síðustu 10 mínúturnar voru þó ÍR-ingar eilítið klókari og náðu að kreista fram sigur. 30-32 urðu lokatölur fyrir ÍR. Lentu þeir virkilega í kröppum dansi undir lokin og líklega óþarfi hjá þeim að hleypa leiknum upp í svona spennu.

Hjá Hvíta Riddaranum var Ævar Smári Gunnarsson markahæstur með 8 mörk. Sigurjón Bragi Atlason varði 17 skot.

Hjá ÍR var Bernard Darkoh markahæstur með 8 mörk. Alexander Ásgrímsson varði 12 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top