Á Selfossi í dag mættust Selfoss 2 og Hörður í Grill 66 deild karla. Eftir jafnar upphafsmínútur voru Harðar menn heilt yfir betri aðilinn í fyrri hálfleik. Komust þeir mest 4 mörkum yfir í stöðunni 10-14. Hálfleikstölur voru 15-17 fyrir gestina frá Ísafirði. Það tók gestina 5 mínútur í seinni hálfleik að jafna leikinn. Fljótlega eftir það náðu þeir mjög góðum tökum á leiknum og náðu mest 8 marka forskoti. Lokatölur urðu 36-29 fyrir Selfyssinga. Ragnar Hilmarsson átti stórleik fyrir Selfoss og setti 12 mörk. Markvarslan hjá Garðari og Ísaki skilaði þeim 14 boltum. Hjá Herði var Jose Neto markahæstur með 8 mörk. Hermann og Lazar vörðu samtals 13 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.