Fram 2 og Fjölnir mættust í dag í Úlfarsárdalnum í Grill 66 deild karla. Fjölnismenn voru mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og náðu þeir mest 6 marka forskoti. En Framarar áttu frábæran endasprett í fyrri hálfleik og náðu að jafna leikinn rétt áður en flautað var til hálfleiks. 15-15 voru hálfleikstölur. Í seinni hálfleik var lengi vel mikið jafnræði með liðunum en um miðbik hálfleiksins náðu Framarar að komast yfir. Var leikurinn mjög jafn en Framarar alltaf hálfu skrefi á undan. Fór það svo að Framarar sigruðu að lokum með eins marks mun. Lokatölur 31-30 í hörkuleik í Lambhagahöllinni. Hjá Fram 2 var Jón Sigurður Bjarnason markahæstur með 6 mörk. Jóhann Ágústsson varði 13 skot. Hjá Fjölni var Óli Fannar Pedersen markahæstur með 9 mörk. Garpur Druzin Gylfason varði 11 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.