Daníel Máni með 16 mörk á Suðurnesjum
Facebook

Í dag mættust Víðir í Garði og Haukar 2 í Garði á Suðurnesjum í Grill 66 deild karla.

Heimamenn í Víði í Garði voru mun ferskara liðið fyrstu 20 mínútur leiksins. Komust þeir m.a í 11-6 og höfðu fín tök á leiknum. Á 20 mínútu jöfnuðu Haukamenn í 12-12 og voru betri síðustu 10 mínútur fyrri hálfleiks. Hálfleikstölur 16-18.

Í seinni hálfleik voru Haukamenn áfram betri en náðu ekki alveg að slíta Víðis menn frá sér. Voru þeir mikið 2-3 mörkum yfir lengi vel. Fór það svo að lokum að Haukar unnu 30-34. Sanngjarn sigur hjá þeim.

Daníel Máni Sigurgeirsson átti frábæran leik fyrir Hauka 2 og setti hann 16 mörk. Ari Dignus og Birnir vörðu 15 skot samtals.

Marek Lesansky skoraði 7 mörk fyrir Víði. Jan Widera og Sigurjón Sveinsson vörðu samtals 15 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top