Eftir afhroðið gegn Selfossi í 1. umferð sýndu Valskonur sitt rétta andlit þegar Íslandsmeistaraefni ÍBV komu í heimsókn í lokaleik 2. umferðar Olís-deildar kvenna í kvöld. Valur vann 31-27 og náði þar með í sín fyrstu stig á tímabilinu. Valur hafði tögl og hald á leiknum lengst af. Heimakonur byrjuðu af krafti og komust í 8-4 um miðjan fyrri hálfleik. ÍBV minnkaði muninn í 8-6 en þá tók Valur aftur við sér og náði mest sjö marka forskoti, 15-8. Eyjakonur náðu að laga stöðuna fyrir hlé. Sandra Erlingsdóttir, Andrea Jacobsen, Ásta Björt Júlíusdóttir og Kristrún Ósk Hlynsdóttir voru meðal þeirra sem fundu netið og munurinn var þrjú mörk í hálfleik, 16-13. ÍBV kom af miklum krafti inn í síðari hálfleikinn. Gestirnir jöfnuðu í 16-16 og komust síðan tveimur mörkum yfir, 18-16. Leikurinn var í járnum næstu mínútur og ÍBV náði aftur þriggja marka forskoti í 22-19. Valskonur svöruðu hins vegar með sterkum lokakafla. Þær jöfnuðu í 22-22 og þótt ÍBV kæmist aftur yfir, 23-22, tók Valur völdin í kjölfarið. Heimakonur skoruðu fjögur mörk í röð og breyttu stöðunni í 26-23. ÍBV reyndi að saxa á forskotið en Valur hélt gestunum frá sér. Laufey Helga Óskarsdóttir kom Val í 30-26 þegar rúmar fjórar mínútur voru eftir og sigurinn var þá kominn í örugga höfn. Lokatölur urðu 31-27. Guðrún Hekla Traustadóttir var markahæst hjá Val með átta mörk. Auður Ester Gestsdóttir skoraði sex en Arna Karitas Eiríksdóttir og Laufey Helga Óskarsdóttir fimm hvor. Hjá ÍBV voru Andrea Jacobsen og Sandra Erlingsdóttir markahæstar með fimm mörk hvor. Andrea þurfti alls tíu skot til að skora þessi fimm mörk. Alexandra Ósk Viktorsdóttir, Ásdís Halla Hjarðar og Kristrún Ósk Hlynsdóttir skoruðu þrjú mörk hver. Valur svaraði því fyrir óvænt tapið gegn Selfossi í 1. umferð og er komið með tvö stig eftir tvo leiki. ÍBV þurfti hins vegar að sætta sig við sitt fyrsta tap á tímabilinu eftir sigur á KA/Þór í 1.umferðinni. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.