Haukar unnu KA/Þór, 33–26, á Akureyri í 2. umferð Olís-deildar kvenna í dag. Haukar hafa þar með unnið báða leiki sína á tímabilinu en KA/Þór er enn án stiga. Heimakonur héldu í við Hauka á upphafsmínútunum og voru marki yfir, 4–3, eftir rúmar tíu mínútur. Þá skoruðu Haukar fjögur mörk í röð og breyttu stöðunni í 4–7. KA/Þór minnkaði muninn í eitt mark, 9–10, en lokakafli fyrri hálfleiks tilheyrði gestunum. Haukar skoruðu átta mörk gegn einu og leiddu 18–10 í hálfleik. Haukar héldu forskotinu framan af síðari hálfleik og voru níu mörkum yfir, 24–15, þegar rúmur stundarfjórðungur var eftir. KA/Þór náði að minnka muninn í sjö mörk, en komst ekki nær. Lokatölur urðu 33–26. Sonja Lind Sigsteinsdóttir skoraði tíu mörk fyrir Hauka úr sextán skotum og Jóhanna Margrét Sigurðardóttir átta. Joan Rúnadóttir Johannesen var markahæst hjá KA/Þór með tíu mörk. Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir, markvörður Hauka, fór meidd af velli um miðbik síðari hálfleiks eftir stutta dvöl á vellinum. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.