Íslendingarnir höfðu hægt um sig í sigri Blomberg Lippe
Eva Manhart; MOL Esztergom

Díana Dögg Magnúsdóttir, Elín Rósa Magnúsdóttir og liðsfélagar þeirra í HSG Blomberg-Lippe unnu öruggan 31-25 útisigur á Union Halle-Neustadt í þýsku Bundesligunni í kvöld.

Blomberg lagði grunninn að sigrinum með frábærum fyrri hálfleik og var komið með níu marka forskot þegar gengið var til búningsherbergja, 19-10.

Þýsku meistararnir mættu af miklum krafti til leiks og náðu fljótt undirtökunum. Heimakonur í Halle áttu í miklum vandræðum með að halda í við hraðann hjá Blomberg og gestirnir juku forskot sitt jafnt og þétt þegar leið á fyrri hálfleikinn.

Staðan var því vænleg fyrir Blomberg í hálfleik, 19-10, og ljóst að Halle þyrfti á mikilli endurkomu að halda eftir hlé.

Heimakonur náðu að laga stöðuna töluvert í síðari hálfleik og minnka muninn, en níu marka forskot Blomberg frá fyrri hálfleik reyndist of stórt til að vinna upp. Blomberg hélt heimakonum í hæfilegri fjarlægð og sigldi að lokum sex marka sigri, 31-25.

Díana Dögg skoraði eitt mark fyrir Blomberg í leiknum en Elín Rósa komst ekki á blað.

Blomberg hefur þar með unnið alla þrjá leiki sína í þýsku Bundesligunni á tímabilinu. Liðið hóf titilvörnina með 37-34 sigri á Göppingen og fylgdi því eftir með stórsigri á Metzingen, 40-28.

Næsta verkefni Blomberg er í Meistaradeild Evrópu á laugardaginn þegar norska liðið Storhamar kemur í heimsókn. Blomberg tapaði fyrsta leik sínum í Meistaradeildinni gegn Gloria Bistrița, 28-23, um síðustu helgi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top