Flensburg áfram á sigurbraut – Eisenach vann sinn fyrsta
Michael Hundt / dpa Picture-Alliance via AFP)

Tveir leikir fóru fram í þýsku Bundesligunni í handbolta í gær þegar 4. umferðin hófst. SG Flensburg-Handewitt hélt fullkominni byrjun sinni áfram með sannfærandi útisigri á TBV Lemgo Lippe, 39-30, á meðan ThSV Eisenach vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu gegn nýliðum SG BBM Bietigheim, 31-25. 

Flensburg tók snemma stjórn á leiknum og var komið með sex marka forskot í hálfleik, 19-13. Benjamin Buric var öflugur í marki gestanna og hafði þá þegar varið níu skot, á meðan Simon Pytlick og Marko Grgic höfðu skorað sex mörk hvor.

Gestirnir héldu öruggum tökum á leiknum í seinni hálfleik og unnu að lokum með níu mörkum, 39-30. Þetta var fjórði sigur Flensburg í jafnmörgum leikjum og liðið fór með sigrinum á topp Bundesligunnar, að minnsta kosti tímabundið. Pytlickvar markahæstur í liði Flensburg með níu mörk en Samuel Zehnder skoraði tíu fyrir Lemgo. 

Skugga bar á leikinn hjá Lemgo þegar Tim Suton þurfti að yfirgefa völlinn þegar um sjö mínútur voru eftir vegna meiðsla á hné. Grunur er um alvarleg meiðsli. 

Í hinum leik gærkvöldsins byrjuðu nýliðar Bietigheim betur og komust snemma í 5-2 en Eisenach vann sig smám saman inn í leikinn og jafnaði fyrir hálfleik, 14-14.

Heimamenn tóku síðan völdin eftir hlé. Eisenach náði fimm marka forskoti, 24-19, um miðjan síðari hálfleik og Bietigheim tókst ekki að brúa bilið. Lokatölur urðu 31-25 og þar með var fyrsti sigur Eisenach á tímabilinu í höfn. 

Felix Aellen átti stórleik fyrir Eisenach og skoraði 12 mörk. Matija Spikic var betri en enginn í markinu og varði 15 skot í marki heimamanna. Eisenach er nú með þrjú stig eftir fjóra leiki. 

Úrslit gærkvöldsins:
TBV Lemgo Lippe 30-39 SG Flensburg-Handewitt
ThSV Eisenach 31-25 SG BBM Bietigheim

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top