Mótmæltu þátttöku Green vegna tólf ára gamals leikbanns
Henning Bagger / Ritzau Scanpix / AFP

Aarhus Håndbold hefur mótmælt þátttöku Jannicks Green í 32-22 sigri HØJ Elite á liðinu í dönsku 1.deildinni á dögunum. Mótmælin snúa að eins leiks banni sem markvörðurinn fékk árið 2014 en afplánaði aldrei.

Green lék þá með Bjerringbro-Silkeborg og fékk leikbann í tengslum við mál þar sem leikmenn félagsins greiddu fé úr sektarsjóði sínum til leikmanna SønderjyskE eftir leik gegn Skanderborg. Hann hélt skömmu síðar til Þýskalands og leikbannið kom því aldrei til framkvæmda.

Forráðamenn Aarhus telja að bannið hafi enn átt að vera í gildi þegar Green sneri aftur í danskan handbolta með HØJ í sumar. Félagið lagði því fram formleg kvörtun eftir tíu marka tapið.

HØJ hafnar því að markvörðurinn hafi verið ólöglegur. Félagið segist hafa fengið skriflega staðfestingu frá danska handknattleikssambandinu um að refsingin væri fyrnd og því hefði Green verið heimilt að spila. Niðurstaða mótmælanna lá ekki fyrir þegar frétt Sport Bild var birt.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top