Elín Klara Þorkelsdóttir gengur til liðs við danska stórliðið Ikast Håndbold frá IK Sävehof eftir yfirstandandi tímabil. Hún hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Þetta var tilkynnt nú rétt í þessu. Elín Klara sem er 21 árs gömul og er á sínu öðru ári með Savehof í Svíþjóð var valin besti leikmaður sænsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð eftir frábæra frammistöðu með Sävehof. „Ég er mjög ánægð og stolt yfir því að verða hluti af Ikast. Ég hlakka mikið til að taka næsta skref á ferlinum og spila í Danmörku,“ segir Elín Klara í tilkynningu félagsins. „Ikast er stórt félag með mikinn metnað og háleit markmið. Ég trúi því að við getum náð góðum árangri saman. Þetta er jafnframt mjög gott tækifæri fyrir mig til að þróast áfram sem leikmaður og takast á við nýtt umhverfi.“ Elín Klara hefur þegar öðlast mikla reynslu í sænsku úrvalsdeildinni auk þess að vera orðin lykilmaður í íslenska landsliðinu. Hún klæðist gulu treyjunni hjá Ikast frá og með næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.