Í kvöld mættust Valur 2 og Fram 2 í Grill 66 deild kvenna en leikið var á Hlíðarenda. Vals stelpur byrjuðu mun ákveðnari og voru betri fyrstu 20 mínútur leiksins. Þá tókst Fram stúlkum að jafna og komast yfir svo. Fóru Fram stelpur með 1 marks forystu inn til búningsherbergja. Hálfleikstölur 12-13. Í seinni hálfleik skiptust liðin á að leiða leikinn en síðustu 10 mínúturnar voru æsispennandi og tvísýnt hvorum megin leikurinn myndi lenda. Katla Margrét Óskarsdóttir skoraði svo lokamarkið í leiknum þegar lítið var eftir og kom Vals stelpum yfir í 28-27. Urðu það lokatölur leiksins. Hjá Val var Katla Margrét Óskarsdóttir markahæst og Iðunn Vala Kristbjörnsdóttir varði 3 skot. Hjá Fram var Katla Kristín Hrafnkelsdóttir markahæst með 7 mörk. Arna Sif Jónsdóttir varði 10 skot. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.