Í kvöld mættust Grótta 2 og Fjölnir í Grill 66 deild kvenna en leikið var á Seltjarnarnesi. Fjölnis liðið var betri aðilinn strax frá byrjun. Voru þær alltaf 2 skrefum á undan Gróttu liðinu á Nesinu í kvöld. Mest náðu þær 6 marka forskoti og voru hálfleikstölur 11-17. Í seinni hálfleik bættu Fjölnis stelpur bara í og ljóst að þrekið var farið að dvína hjá Gróttu liðinu. Lokatölur 18-33 fyrir Fjölni og annar sigur þeirra í röð. Athygli vakti að 3 rauð spjöld voru í leiknum í kvöld og voru þau öll Gróttu megin. Þær Katrín Thorsteinsson, Þorgerður Anna Grímsdóttir og Guðlaug Einarsdóttir fengu allar reisupassann. Hjá Gróttu var Edda Sigurðardóttir markahæst með 11 mörk og Soffía Helen Sölvadóttir varði 12 skot. Hjá Fjölni voru Sara Kristín Pedersen og Signý Harðardóttir markahæstar með 8 mörk. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.