Það voru nokkur Íslendingalið í eldlínunni í dag í bæði Danmörku og í Svíþjóð en í sænska bikarnum spiluðust seinni leikirnir í 16 liða úrslitunum á meðan deildarkeppnin hélt áfram í Danmörku. Ribe-Esbjerg komst aftur á sigurbraut eftir góðan útisigur á Nordsjælland, 29-34 þar sem Elvar Ásgeirsson átti fínan leik fyrir gestina en hann skoraði fimm mörk úr tíu skotum, gaf einnig fimm stoðsendingar og fékk eina brottvísun að auki. Ribe-Esbjerg eru einir á toppi deildarinnar með níu stig eftir fimm leiki en GOG leika á morgun gegn Sønderjyske á útivelli og jafna þá að stigum með sigri. Erfið byrjun TTH Holstebro hélt áfram en þeir töpuðu í dag fyrir Skjern á heimavelli, 27-29 en Jóhannes Berg Andrason klikkaði á eina skoti sínu í leiknum í dag en liðið er í tíunda sæti með aðeins þrjú stig eftir fimm leiki og ljóst að Benedikt Gunnar Óskarsson gæti hjálpað liðinu mikið en hann er ennþá að jafna sig eftir meiðsli. Í næstefstu deild kvenna töpuðu Rødovre á útivelli fyrir Viborg, 20-18 þar sem Inga Dís Jóhannsdóttir skoraði fimm mörk og fékk eina brottvísun á meðan Thelma Melsteð skoraði tvö mörk og fékk eina brottvísun. Í sænska bikarnum komst eitt Íslendingalið áfram í átta liða úrslitin á meðan annað féll úr leik. Amo tók á móti Skånela á heimavelli sínum í dag og vann tveggja marka sigur, 35-33 og tryggði sér farseðilinn í næstu umferð. Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði sjö mörk fyrir heimamenn í dag og átti fínan leik. Það var meiri spenna í Västerås þegar Karlskrona mætti í heimsókn en eftir venjulegan leiktíma var staðan 27-26 fyrir heimamenn í VästeråsIrsta sem þýddi að það þurfti vítakastskeppni til að útkljá einvígið. Þar reyndust heimamenn sterkari og slógu út Karlskrona. Arnór Viðarsson skoraði fjögur mörk fyrir gestina og fékk tvær brottvísanir að auki. Úrslit dagsins: Norsjælland 29-34 Ribe-Esbjerg TTH Holstebro 27-29 Skjern Viborg 20-18 Rødovre Amo 35-33 Skånela VästeråsIrsta 35-33 Karlskrona

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.