Alfa Brá Oddsdóttir Hagalin og liðsfélagar hennar í Thüringer HC héldu sigurgöngu sinni áfram í þýsku úrvalsdeildinni í dag á meðan nokkrir Íslendingar voru í eldlínunni í B-deildinni. Thüringer vann 37-32 heimasigur á Frisch Auf Göppingen eftir að hafa verið 18-15 yfir í hálfleik. Liðið hefur þar með unnið alla þrjá leiki sína á tímabilinu og er með fullt hús stiga. Alfa Brá var í leikmannahópi Thüringer en komst ekki á blað. Jana Scheib var markahæst í liði Thüringer með sjö mörk. Blær Hinriksson og félagar í SC DHfK Leipzig unnu dramatískan 33-32 sigur á VfL Lübeck-Schwartau í þýsku B-deildinni. Blær skoraði þrjú mörk í leiknum, þar af eitt úr vítakasti, og Leipzig hefur þar með unnið alla þrjá leiki sína eftir fallið úr efstu deildinni. Adam Thorstensen var í marki Lübeck-Schwartau í leiknum og varði fjögur skot, þar af eitt vítakast. Adam gekk til liðs við félagið í sumar og hafði komið sterkur inn í 42-31 sigri á Dormagen í síðustu umferð þegar hann varði tíu skot. Elmar Erlingsson og liðsfélagar hans í HSG Nordhorn-Lingen máttu hins vegar sætta sig við sitt fyrsta tap á tímabilinu þegar liðið tapaði 31-28 á útivelli gegn TV Hüttenberg. Elmar skoraði þrjú mörk í leiknum, þar af eitt úr vítakasti. Nordhorn-Lingen hafði unnið fyrstu tvo leiki sína á tímabilinu og er því með fjögur stig eftir þrjár umferðir.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.