Stórliðin halda sínu striki – Metz og FTC rufu 40 marka múrinn
Blanka Bíro

Önnur umferð EHF Meistaradeildar kvenna fór fram um helgina og nokkur af stærstu liðum keppninnar halda áfram að safna stigum. Metz, Györ, Esbjerg, CSM Búkaresti, FTC og Brest eru öll komin vel af stað en ríkjandi Evrópumeistarar Metz og FTC buðu upp á mestu markaveislur helgarinnar og skoruðu 40 mörk hvort.

Metz fór illa með Gloria Bistrita í leik umferðarinnar, 40:26, á meðan FTC vann Krim 40:29. CSM og Brest unnu einnig með tíu mörkum og Györ gerði slíkt hið sama gegn Nykøbing.

Storhamar náði hins vegar í sín fyrstu stig með útisigri á Blomberg-Lippe og Odense fagnaði sínum fyrsta sigri eftir jafnteflið gegn Nykøbing í fyrstu umferð.

A-RIÐILL

FTC 40:29 Krim – Böde-Bíró lokaði markinu
FTC heldur áfram frábærri byrjun sinni og vann sinn annan leik í röð þegar Krim kom í heimsókn til Ungverjalands.
Leikurinn var jafn fyrstu mínúturnar og FTC leiddi aðeins 4:3 þegar heimakonur settu í næsta gír. Fjögur mörk í röð sköpuðu fyrsta alvöru muninn og Blanka Böde-Bíró sá síðan til þess að Krim átti litla möguleika á að vinna hann upp.

Böde-Bíró varði tólf skot í fyrri hálfleik, helming þeirra skota sem hún fékk á sig, og FTC leiddi 21:12 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Hlutirnir breyttust lítið í seinni hálfleiknum. Elizabeth Omoregie og Petra Simon héldu sóknarleik FTC gangandi og sigurinn var aldrei í hættu.

Omoregie var markahæst heimakvenna með sjö mörk úr átta skotum og virðist hafa fallið hratt inn í lið Jesper Jensen eftir komuna frá CSM Bucuresti. Böde-Bíró lauk leik með 17 varin skot. Liliane Mario skoraði sex mörk fyrir Krim.

CSM Búkaresti 36:26 Buducnost – Rússarnir tóku yfir
CSM Búkaresti vann einnig sinn annan leik þegar Buducnost kom í heimsókn til Rúmeníu og þar voru Daria Dmitrieva og Valeriia Maslova í algjöru aðalhlutverki.

CSM komst í 3:0 á fyrstu þremur mínútunum og 6:2 skömmu síðar. Rússneska tvíeykið leiddi sóknarleik heimaliðsins á meðan Catherine Gabriel varði vel fyrir aftan öfluga vörn.
Buducnost gafst þó ekki upp og undir forystu Djurdjinu Jaukovic, minnkuðu þær muninn niður í aðeins tvö mörk, 21:19, þegar 39 mínútur voru liðnar.
En þá ákvað Dmitrieva að taka leikinn í sínar hendur. Mörk hennar komu CSM af stað í 5:0 kafla sem breytti stöðunni í 26:19 og eftir það átti Buducnost ekki afturkvæmt. Tæknifeilar gestanna urðu þeim dýr og CSM vann að lokum öruggan tíu marka sigur, 36:26.

Dmitrieva og Maslova skoruðu tíu mörk hvor úr tólf skotum og stóðu því saman að 20 af 36 mörkum CSM. Jaukovic var markahæst Buducnost með sjö mörk.

Brest 34:24 Dortmund – André skellti í lás
Brest er einnig með fullt hús stiga eftir sannfærandi tíu marka sigur á Dortmund, 34:24.

Tamara Horacek fór mikinn strax í upphafi og Brest skoraði fyrstu fjögur mörk leiksins. Dortmund svaraði vel og jafnaði í 5:5 en eftir jafnan kafla tók Brest aftur frumkvæðið með öðrum 4:0 spretti og komst í 11:8. Horacek nýtti öll fimm skot sín í fyrri hálfleik og Brest leiddi 17:12 að honum loknum.

Eftir hlé tók Floriane André síðan við sviðsljósinu í marki Brest. Hún varði hvað eftir annað og munurinn jókst hratt. Brest náði tíu marka forskoti, 25:15, á 44. mínútu og hélt því forskoti út leikinn. André lauk leik með 18 varin skot og 45 prósenta markvörslu.

Horacek var markahæst Brest með átta mörk úr jafnmörgum skotum. Alina Grijseels og Kelly Vollebregt skoruðu fjögur hvor fyrir Dortmund.

Esbjerg 28:25 Sola – Norðmennirnir gerðu stórliðinu lífið leitt
Esbjerg er komið með fjögur stig en þurfti að hafa töluvert meira fyrir sigrinum á Sola en margir hefðu mögulega búist við. Esbjerg byrjaði af krafti og var komið í 9:4 eftir 16 mínútur. Henny Reistad og Live Rushfeldt Deila leiddu sóknarleikinn og danska liðið virtist vera með góð tök á viðureigninni.

Staðan var 16:12 í hálfleik en Sola mætti allt öðruvísi til síðari hálfleiks. Camilla Herrem og Anngunn Gudmestad fóru fyrir endurkomu norska liðsins sem minnkaði muninn niður í eitt mark. Esbjerg náði aftur fimm marka forskoti en Sola kom enn einu sinni til baka. Í stöðunni 27:25 fékk Sola tvö tækifæri í röð til að minnka muninn enn frekar og jafnvel koma sér í stöðu til að jafna. Katharina Filter varði hins vegar þegar mest á reyndi og tryggði Esbjerg 28:25 sigur.

Nora Mørk og Henny Reistad skoruðu sjö mörk hvor fyrir Esbjerg en hin reynslumikla Camilla Herrem var markahæst Sola með átta.

B-RIÐILL

Blomberg-Lippe 23:27 Storhamar – Díana Dögg með fimm mörk
Storhamar náði í sín fyrstu stig í Meistaradeildinni á tímabilinu með 27:23 útisigri á HSG Blomberg-Lippe. Díana Dögg Magnúsdóttir átti góðan leik fyrir þýsku meistarana og skoraði fimm mörk, en það dugði ekki til gegn öflugu norsku liði.

Leikurinn var jafn og markalítill frá fyrstu mínútu og hvorugu liðinu tókst að ná almennilegu taki á viðureigninni í fyrri hálfleik. Blomberg komst meðal annars tveimur mörkum yfir, 6:4, en Storhamar vann sig aftur inn í leikinn og fór með minnsta mögulega forskot inn í leikhlé, 10:9.

Svipað var uppi á teningnum í byrjun síðari hálfleiks. Blomberg komst aftur yfir, 12:11, en markvörðurinn Eli Marie Raasok reyndist heimakonum erfið og Storhamar náði smám saman að snúa leiknum sér í hag. Þegar leið á síðari hálfleikinn fór markvarsla Raasok að vega sífellt þyngra og Storhamar náði að skapa sér forskot. Þegar tæpar tíu mínútur voru eftir var norska liðið komið fimm mörkum yfir, 22:17, og Blomberg tókst ekki að vinna þann mun upp á lokakaflanum. Þær norsku höfðu að lokum fjögurra marka sigur 27-23.

Blomberg er því enn án stiga eftir fyrstu tvo leiki sína í Meistaradeildinni, en liðið hefur þurft að sætta sig við tap gegn Gloria Bistrita og Storhamar. Fyrir Storhamar var niðurstaðan kærkomin eftir tapið gegn ríkjandi Evrópumeisturum Metz í fyrstu umferð.

Díana Dögg lét vel að sér kveða í sóknarleik Blomberg og var ein helsta ógn heimakvenna. Hún skoraði fimm mörk og var næstmarkahæst liðsins ásamt Farrelle Njinkeu. Aðeins Nieke Kühne skoraði fleiri fyrir Blomberg, eða sex mörk. Elín Rósa Magnúsdóttir, kom einnig við sögu í leiknum en náði ekki að skora að þessu sinni. Raasok var einn af lykilmönnum Storhamar og lauk leik með 16 varin skot og tæplega 46 prósenta markvörslu. Kristin Venn og Christina Pedersen voru markahæstar norska liðsins með sex mörk hvor.

Györ 35:25 Nykøbing – Hovden fór á kostum
Györ hefur unnið báða leiki sína eftir öruggan 35:25 sigur á Nykøbing Falster. Alberte Hovgaard-Hansen skoraði fyrsta mark leiksins fyrir danska liðið en það reyndist eina skiptið sem Nykøbing hafði forystuna.

Györ þurfti sjálft tæpar fimm mínútur til að komast á blað en þegar fyrsta markið kom opnuðust flóðgáttirnar. Tjaša Stanko og Emilie Hovden fóru fyrir 7:0 kafla og Györ breytti stöðunni í 10:2 þegar 16 mínútur voru liðnar. Átta mörkum munaði í hálfleik, 18:10, og Nykøbing tókst aldrei að ógna sigri ungverska stórliðsins.

Hovden var frábær og skoraði ellefu mörk úr þrettán skotum. Clara Lerby hélt áfram góðri byrjun sinni hjá Nykøbing og skoraði átta mörk úr níu skotum.

Odense 31:24 Podravka – sjö mörk í röð breyttu leiknum
Odense fagnaði sínum fyrsta sigri á tímabilinu þegar Podravka kom í heimsókn og lokatölurnar urðu 31:24.

Króatíska liðið byrjaði vel og hélt í við Odense fyrstu 20 mínúturnar. Podravka komst meira að segja yfir snemma leiks en síðan hrundi sóknarleikurinn.
Gestirnir spilðu í níu mínútur án þess að skora og Odense nýtti sér það til fulls með sjö mörkum í röð. og var staðan var 16:10 í hálfleik.

Podravka gerði tilraun til endurkomu í seinni hálfleik og með góðri markvörslu Anicu Gudelj minnkaði liðið muninn niður í þrjú mörk. Vörn Odense stóð hins vegar af sér áhlaupið. Ingvild Bakkerud var sérstaklega mikilvæg þegar Podravka reyndi að saxa á forskotið og lauk leik með átta mörk úr tíu skotum. Katarina Pandža átti stórleik fyrir Podravka og skoraði ellefu mörk úr 14 skotum, en það dugði ekki til.

Metz 40:26 Gloria Bistrita – meistararnir sýndu mátt sinn
Ríkjandi Evrópumeistarar Metz sendu sterk skilaboð í leik umferðarinnar þegar Gloria Bistrita kom í heimsókn.

Rúmenska liðið byrjaði raunar betur og komst í 4:2. Það forskot entist þó skammt. Þegar Metz fann taktinn gjörbreyttist leikurinn. Sabrina Novotná fór að verja og heimakonur refsuðu með hröðum mörkum. Sjö mörk Metz í röð sneru leiknum algjörlega við og Bistrita fann engin svör.

Nina Engel hafði skorað þrjú af fyrstu fjórum mörkum gestanna en sóknarleikur Gloria missti taktinn þegar leið á fyrri hálfleikinn. Metz leiddi 17:11 í leikhléi.

Í seinni hálfleik hélt Novotná áfram að verja og breiddin í leikmannahópi Metz fór sífellt betur að segja til sín. Munurinn varð fyrst tíu mörk í stöðunni 33:23 þegar tíu mínútur voru eftir og eftir það bættu meistararnir enn í. Lokatölur urðu 40:26 og Metz varð þar með annað liðið um helgina til að rjúfa 40 marka múrinn á eftir FTC.

Novotná var valin maður leiksins eftir frábæra frammistöðu. Hún varði 17 skot og skoraði sjálf eitt mark. Kristina Jørgensen var markahæst Metz með átta mörk úr níu skotum en Helena Simão Paulo skoraði sex úr sex fyrir Bistrita.

Sex lið með fullt hús
Eftir fyrstu tvær umferðirnar eru nokkur af þeim liðum sem spáð var góðu gengi strax farin að láta til sín taka.
CSM Búkaresti, FTC, Brest, Esbjerg, Györ og Metz hafa öll unnið fyrstu tvo leiki sína og eru því með fullt hús stiga.

Sérstaklega vekur sóknarleikur FTC athygli en ungverska liðið fylgdi níu marka útisigri á Buducnost eftir með 40 mörkum gegn Krim. Metz svaraði síðan með eigin 40 marka sýningu gegn Gloria Bistrita. Á sama tíma sýndu markverðirnir hversu mikil áhrif þeir geta haft. Blanka Böde-Bíró varði 17 skot fyrir FTC, Floriane André 18 fyrir Brest, Eli Marie Raasok 16 fyrir Storhamar og Sabrina Novotná 17 fyrir Metz.

Önnur umferðin gaf því enn sterkari vísbendingar um hvaða lið ætla sér að vera í fremstu röð þegar líður á veturinn – en tímabilið er rétt að byrja.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top