FH stelpur með öruggan sigur í Krikanum
J.L.Long

Í kvöld mættust FH og HK 2 í Grill 66 deild kvenna en leikið var í Kaplakrika.

Eftir jafnar upphafsmínútur þá tóku FH stelpur yfir leikinn. Voru þær mun betri allan fyrri hálfleikinn og fóru með 6 marka forskot inn til búningsherbergja. Hálfleikstölur voru 15-9.

Í seinni hálfleik héldu FH stelpur áfram á fullu gasi og bættu bara í. Var sigur þeirra aldrei í hættu. Lokatölur urðu 31-19 fyrir FH stelpur.

Markahæst hjá FH var Eva Aðalsteinsdóttir með 7 mörk. Sonja Szöke og Sigrún Ásta Möller vörðu samtals 18 skot.

Hjá HK voru Auður Guðmundsdóttir og Kristín Einarsdóttir markahæstar með 4 mörk. Freydís Ragna varði 9 skot.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top