Grill 66-deildarliðin Grótta og Víðir mættust í 32-liða úrslitum Powerade-bikars karla á Seltjarnarnesi í dag. Grótta reyndist töluvert sterkari aðilinn og vann sannfærandi 35-19 sigur eftir að hafa verið sex mörkum yfir í hálfleik, 14-8. Víðir skoraði fyrsta mark leiksins en Grótta tók fljótlega frumkvæðið. Staðan var 9-5 um miðjan fyrri hálfleik og þar tók við frábær kafli Hannes Péturs Haukssonar í marki Gróttu. Hann varði ítrekað og gestirnir áttu í miklum vandræðum með að finna leiðina framhjá honum. Grótta leiddi 14-8 í hálfleik og gerði svo nánast út um leikinn strax í upphafi síðari hálfleiks. Heimamenn skoruðu fyrstu fjögur mörk hálfleiksins og breyttu stöðunni í 18-8. Munurinn hélt áfram að aukast og Grótta komst meðal annars í 29-15 þegar rúmar 47 mínútur voru liðnar. Víðismenn áttu engin svör og Grótta sigldi örugglega inn í 16-liða úrslitin. Lokatölur urðu 35-19. Kári Kvaran var markahæstur Gróttumanna með sjö mörk. Ásgeir Bragi Bryde Þórðarson, Gísli Örn Alfreðsson og Sæþór Atlason skoruðu sex mörk hver og Arnþór Sævarsson fjögur. Hannes Pétur átti jafnframt stórleik í marki Gróttu og varði 14 skot. Eiríkur Guðni Þórarinsson var markahæstur Víðismanna með fimm mörk og Tymon Ponto skoraði fjögur. Jan Krzysztof Widera varði sex skot í marki Víðis og Sigurjón Ágúst Sveinsson þrjú.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.