Sigurður Dan bjargaði stigi fyrir Stjörnuna
HSB

Selfoss og Stjarnan skildu jöfn, 34-34, í dramatískum leik í Olís deild karla á Selfossi í kvöld. Heimamenn fengu gullið tækifæri til að tryggja sér bæði stigin úr vítakasti eftir að leiktíminn rann út en Sigurður Dan Óskarsson varði og tryggði Stjörnunni annað stigið.

Stjarnan byrjaði leikinn betur og náði snemma þriggja marka forskoti. Selfyssingar unnu sig þó fljótt inn í leikinn og eftir það var lítið á milli liðanna framan af fyrri hálfleik.

Gestirnir náðu aftur að skapa sér forskot þegar leið á hálfleikinn en Selfoss svaraði og komst yfir. Miklar sveiflur voru í leiknum undir lok fyrri hálfleiks en Stjarnan átti betri lokakafla og fór með tveggja marka forskot inn í búningsklefa, 19-17.

Síðari hálfleikurinn var áfram jafn og spennandi. Selfoss náði að halda sér í seilingarfjarlægð og liðin skiptust á að eiga góða kafla. Staðan var meðal annars jöfn, 22-22, og aftur 25-25 þegar rúmar 37 mínútur voru liðnar.

Þá náði Stjarnan góðum kafla og gestirnir komust þremur mörkum yfir, 28-25. Selfoss svaraði en Stjörnumenn héldu frumkvæðinu og þegar rúmar átta mínútur lifðu leiks var staðan 32-30 fyrir gestina.

Selfyssingar gáfust ekki upp. Þeir jöfnuðu í 32-32 og eftir að Stjarnan komst aftur yfir náði Hákon Garri Gestsson að jafna í 33-33. Jónas Karl Gunnlaugsson kom Selfossi síðan yfir, 34-33, þegar tæpar fjórar mínútur voru eftir.

Tandri Már Konráðsson jafnaði metin í 34-34 þegar rúmar tvær mínútur lifðu leiks en dramatíkinni var þó ekki lokið.

Selfoss fékk vítakast eftir að leiktíminn var runninn út og gat því tryggt sér bæði stigin með síðasta kasti leiksins. Sigurður Dan Óskarsson sá hins vegar til þess að svo varð ekki, varði vítakastið og varð hetja gestanna þegar hann tryggði þeim stigið.

Lokatölur 34-34 eftir mikinn spennuleik á Selfossi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top