
Valur sneri aftur á sigurbraut með öruggum níu marka sigri á HK, 38–29, í 3. umferð Olís-deildar karla í Kórnum í kvöld. Gunnar Róbertsson hélt uppteknum hætti í liði Vals og skoraði 16 mörk, en hann gerði 17 mörk í stórtapinu gegn Fram í síðustu umferð. Gunnar hefur því skorað 33 mörk í síðustu tveimur leikjum. HK byrjaði leikinn betur og komst í 6–5. Þegar tíu mínútur voru liðnar fékk Torfi Geir Halldórsson, leikmaður HK, beint rautt spjald fyrir brot á Gunnari. Valsmenn gengu á lagið í kjölfarið og breyttu stöðunni úr 6–6 í 9–6. HK náði að minnka muninn í eitt mark, 12–11, en Valur hafði tveggja marka forskot í hálfleik, 17–15. Gestirnir tóku síðan öll völd í upphafi síðari hálfleiks. Valur skoraði sex af fyrstu sjö mörkum hálfleiksins og breytti stöðunni í 23–16. HK tókst aldrei að ógna forskoti Vals eftir það og varð munurinn mestur níu mörk. Lokatölur urðu 38–29 og Valur er nú með fjögur stig eftir þrjár umferðir. HK hefur hins vegar tapað öllum þremur leikjum sínum og er enn án stiga. Gunnar var langmarkahæstur Vals með 16 mörk og Dagur Leó Fannarsson skoraði sex. Aron Dagur Pálsson var markahæstur HK með sex mörk og Andri Þór Helgason skoraði fimm. HK–Valur 29–38 (15–17) Mörk HK: Aron Dagur Pálsson 6, Andri Þór Helgason 5, Kári Tómas Hauksson 4, Örn Alexandersson 4, Alex Máni Oddnýjarson 3, Gunnar Dan Hlynsson 3, Tómas Bragi Lorriaux Starrason 3, Trúgvi Hávardsson 1. Mörk Vals: Gunnar Róbertsson 16, Dagur Leó Fannarsson 6, Arnór Snær Óskarsson 4, Andri Finnsson 3, Daníel Montoro 3, Allan Norðberg 2, Bjarki Snorrason 1, Jóhannes Jóhannesson 1, Sigurður Atli Ragnarsson 1, Tjörvi Týr Gíslason 1.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.