ÍR með öruggan sigur – Sara Dögg fór á kostum
Sævar Jónasson

ÍR vann öruggan sjö marka sigur á KA/Þór, 23-16, í Olís deild kvenna í dag. Heimakonur lögðu grunninn að sigrinum með sterkum fyrri hálfleik og leiddu 10-5 í leikhléi. Sara Dögg Hjaltadóttir átti stórleik fyrir ÍR og skoraði meira en helming marka liðsins.

ÍR tók strax frumkvæðið og var komið í 6-1 þegar fyrri hálfleikur var rétt tæplega hálfnaður. KA/Þór átti í miklum vandræðum sóknarlega á þessum kafla en náði aðeins að laga stöðuna þegar leið á hálfleikinn. ÍR hélt þó góðum tökum á leiknum og fór með fimm marka forskot inn í leikhlé, 10-5.

KA/Þór náði að minnka muninn í 12-7 snemma í síðari hálfleik en þá tók Sara Dögg Hjaltadóttir til sinna ráða. Hún skoraði þrjú mörk í röð á skömmum kafla og kom ÍR í 15-7. Gestirnir svöruðu með þremur mörkum og minnkuðu muninn í 15-10.

Nær komst KA/Þór þó ekki. ÍR jók forskotið aftur og þegar um 13 mínútur voru eftir var staðan 21-13. Heimakonur héldu gestunum í öruggri fjarlægð það sem eftir lifði og unnu að lokum 23-16 sigur.

Sara Dögg Hjaltadóttir var langmarkahæst hjá ÍR með 12 mörk og Matthildur Lilja Jónsdóttir skoraði sex. Ásthildur Bertha Bjarkadóttir bætti við tveimur mörkum. Ingunn María Brynjarsdóttir varði þrjú skot í marki ÍR.

Hjá KA/Þór var Sólveig Lára Kristjánsdóttir markahæst með fjögur mörk en Bergrós Ásta Guðmundsdóttir og Joan Rúnadóttir Johannesen skoruðu þrjú mörk hvor. Ástrós Bender Mikaelsdóttir varði níu skot í marki KA/Þór.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top