Stjarnan hafði betur á Nesinu
Eyjólfur Garðarsson)

Grótta og Stjarnan mættust í annari umferð Olís deildar kvenna í leik sem var að klárast. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og Stjarnan leiddi með einu marki inn í hálfleik, 14-15.

Áfram var mikið jafnræði með liðunum í byrjun síðari hálfleiks en Stjörnustúlkur voru sterkari undir lokin og lönduðu að lokum sannfærandi fimm marka sigri 27-2

Atkvæðarmest í liði Gróttu var Katrín S Scheving en hún skoraði fimmtán mörk og var markahæsti leikmaður leiksins. Karlotta Kjerúlf Óskarsdóttir, Elísabet Ása Einarsdóttir og Eva Björk Davíðsdóttir skoruðu allar þrjú mörk og aðrar skoruðu minna.

Atkvæðamest í liði Stjörnunnar var Valgerður Elín Snorradóttir en hún skoraði níu mörk úr tólf skotum og fór á kostum í liði gestanna í dag. Sara Rún Gísladóttir skoraði sjö mörk úr 12 skotum og aðrar skoruðu minna.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top