Framarar sterkari undir lokin í spennandi leik
Kristinn Steinn Traustason)

Önnur umferð Olís deildar kvenna er farin af stað þegar Fram og HK mættust í Úlfarsárdalnum. Fyrri hálfleikurinn var gríðarlega jafn og staðan í hálfleik var 13-13.

Spennan var ekkert minni í síðari hálfleik og náðu HK mest tveggja marka forskoti um miðjan síðari hálfleik en Fram kom til baka og var sterkara liðið undir lokin og lönduðu heimastúlkur þriggja marka sigri en lokatölur urðu 26-23 fyrir Fram.

Atkvæðamestar í liði Fram voru Harpa María Friðgeirsdóttir og Ka1trín Anna Ásmundsdóttir en þær skoruðu báðar sjö mörk. Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði fimm og aðrar minna.

Atkvæðamest í liði HK var Tinna Ósk Gunnarsdóttir en hún skoraði tíu mörk í dag. Inga Fanney Haukasóttir skoraði svo sex mörk og aðrar minna.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top