Jana Mittún skiptir um félag í sumar
FEDERICO GAMBARINI / dpa Picture-Alliance via AFP)

Færeyska landsliðskonan Jana Mittún gengur til liðs við Nykøbing Falster sumarið 2027 frá Viborg. Hún hefur skrifað undir þriggja ára samning við danska félagið og verður því hjá Nykøbing til sumarsins 2030.

Hin 22 ára gamla Jana er ein skærasta stjarna færeyska landsliðsins og hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína undanfarin ár. Hún leikur í stöðu leikstjórnanda og hefur verið í stóru hlutverki hjá Viborg síðan hún gekk til liðs við félagið frá H71 í Færeyjum. Jana er eldri systir Óla Mittún leikmanns GOG.

Nykøbing Falster staðfesti félagaskiptin í gær og bindur miklar vonir við komu Jönu, sem félagið telur einn mest spennandi unga leikstjórnanda Evrópu. „Ég er mjög ánægð og spennt fyrir því að ganga til liðs við NFH. Ég hef aðeins heyrt góða hluti um félagið og umhverfið þar,“ sagði Jana þegar félagaskiptin voru kynnt.

Jakob Larsen, þjálfari Nykøbing Falster, segir félagið hafa fylgst lengi með færeysku landsliðskonunni og telur að leikstíll hennar falli vel að liðinu.

Hún hefur verið ein af lykilleikmönnum í uppgangi færeyska landsliðsins undanfarin ár.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top