Tom Kiesler, leikmaður VfL Gummersbach og þýska landsliðsins, er frá keppni um óákveðinn tíma vegna hnémeiðsla. Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari Þýskalands segir þó ekkert benda til þess að þátttaka hans á HM í janúar sé í hættu. Miklar áhyggjur vöknuðu í Þýskalandi þegar Tom Kiesler meiddist á hné í fyrsta leik VfL Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni gegn SC Magdeburg. Gummersbach hefur tilkynnt að Kiesler verði frá keppni um óákveðinn tíma og í kjölfarið vöknuðu eðlilega spurningar um hvort meiðslin gætu sett þátttöku hans á heimsmeistaramótinu í janúar í uppnám. Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands, virðist þó ekki hafa miklar áhyggjur. Alfreð ræddi stöðuna í útsendingu Dyn frá stórleik SC Magdeburg og Füchse Berlin og sagði ekkert stórt spurningarmerki vera við þátttöku Kiesler á HM. „Það er sannarlega ekkert stórt spurningarmerki við þátttöku Tom Kiesler á heimsmeistaramótinu,“ sagði Alfreð samkvæmt handball-world.news. Alfreð viðurkenndi að meiðslin hefðu í fyrstu litið illa út og að hann sjálfur hefði óttast að um alvarlegri meiðsli væri að ræða. Eftir samtal við Guðjón Val Sigurðsson, þjálfara Gummersbach, væri staðan hins vegar mun jákvæðari. Ekki er búist við því að Kiesler verði lengi frá keppni. Alfreð vildi ekki fara nánar út í hvað þeim Guðjóni Val fór á milli en var mjög skýr þegar kom að möguleikum Kiesler á að taka þátt á HM. Að hans mati væri á þessari stundu varla hægt að tala um lítið spurningarmerki við þátttöku hans, hvað þá stórt. Það eru góð tíðindi fyrir þýska landsliðið enda yrði fjarvera Kiesler á HM töluvert áfall fyrir liðið. Eins og staðan er núna bendir þó allt til þess að meiðslin séu mun vægari en óttast var í fyrstu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.