Lovísa Thompson og samherjar hennar í Benfica unnu öruggan tólf marka útisigur á Madeira SAD, 31–19, í portúgölsku 1. deildinni í gær. Á sama tíma tapaði GC Amicitia Zürich, lið Birgis Más Birgissonar, fyrir BSV Bern í svissnesku úrvalsdeildinni, 34–26. Lovísa var í byrjunarliði Benfica en komst ekki á blað í leiknum. Benfica tók snemma frumkvæðið og var sjö mörkum yfir í hálfleik, 17–10. Yfirburðir gestanna jukust eftir hlé og niðurstaðan varð öruggur 31–19 sigur. Benfica hefur farið af stað af miklum krafti, er enn ósigrað og situr í efsta sæti deildarinnar. Leikur Bern og Zürich var jafnari framan af. Bern var þremur mörkum yfir í hálfleik, 17–14, en Zürich minnkaði muninn í 21–18 snemma í síðari hálfleik. Heimamenn svöruðu með sterkum kafla, komust í 24–18 og tryggðu sér að lokum átta marka sigur, 34–26. Birgir Már Birgisson skoraði eitt mark í tapinu en Sven Ehrig liðisfélagi Birgis var markahæstur í leiknum með níu mörk. Zürich hefur unnið tvo af fyrstu fimm leikjum sínum í svissnesku deildinni en tapað þremur. Liðið hóf tímabilið á sigrum gegn Stäfa og Basel en hefur síðan tapað fyrir Kadetten Schaffhausen, Wacker Thun og nú Bern.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.