Rak þjálfarann eftir slæmt gengi
Vijesti

Svartfellska stórliðið Buducnost hefur látið Zoran Abramovic taka pokann sinn eftir aðeins tvo leiki í Meistaradeild kvenna á tímabilinu.

Buducnost hefur farið illa af stað í keppninni og tapað fyrstu tveimur leikjum sínum, gegn FTC frá Ungverjalandi og CSM Bucuresti frá Rúmeníu. Forráðamenn félagsins hafa nú brugðist við byrjuninni með breytingum á þjálfarateyminu.

Við starfi Abramovic tekur Maja Savic, ein þekktasta handboltakona í sögu Svartfjallalands og mikil goðsögn hjá Buducnost. Hún hefur verið hluti af þjálfarateymi félagsins frá árinu 2021 en nú tekur við hún við liðinu.

Savic varð Evrópumeistari með liðinu sem leikmaður árið 2012. 

Goran Cmiljanic, framkvæmdastjóri félagsins, hefur jafnframt sagt starfi sínu lausu og Srdjan Markoc tekur við hans hlutverki. Buducnost hefur því gripið til töluverðra breytinga eftir aðeins tvær umferðir í Meistaradeildinni og Savic fær það verkefni að snúa gengi liðsins við.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top