Sex leikir fóru fram í 2. umferð Meistaradeildar Evrópu karla í gær. Barcelona vann nauman sigur á Montpellier í Frakklandi, Porto lagði Partizan og Skanderborg og Dinamo Búkarest skildu jöfn. Þá unnu Álaborg og Magdeburg örugga útisigra en Wisła Płock hafði betur gegn Melsungen í eins marks leik þar sem Reynir Þór Stefánsson var markahæstur allra á vellinum. Hér fyrir neðan má sjá úrslit leikjanna og síðar hápunkta úr þeim. Wisła Płock – 25–24 – Melsungen RK Celje – 26–36 – Aalborg Porto – 30–28 – Partizan Montpellier – 27–28 – Barcelona Skanderborg – 25–25 – Dinamo Búkarest Kriens-Luzern – 29–39 – Magdeburg

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.