Í kvöld mættust Víkingur og Valur 2 í Grill 66 deild kvenna en leikið var í Virkinu. Víking stelpur áttu frábæra byrjun á leiknum og voru betri heilt yfir allan fyrri hálfleikinn. Vals stúlkur náðu þó að komast yfir um miðbik hálfleiksins en Víkings stelpur gáfu í og fóru inn til búningsherbergja í hálfleik með stöðuna 14-12. Mjótt var á munum og mikið jafnræði var með liðunum fyrstu 20 mínúturnar í seinni hálfleik en síðustu 10 mínúturnar settu Víkings stelpur í auka gír og kláruðu leikinn sannfærandi. 32-25 urðu lokatölur fyrir Víking og er þetta þeirra þriðji sigurleikur í röð. Hjá Víking fóru Ólöf Ásta og Ivana hamförum og skoruðu samtals 24 mörk af 32 mörkum liðsins. Markvarslan skilaði þeim 10 boltum. Hjá Val 2 var Þórdís Gunnarsdóttir markahæst með 6 mörk. Markvarslan skilaði þeim 4 boltum. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.