Þýski handboltamaðurinn Christian Dissinger hefur komið víða við á ferlinum en síðasta ævintýrið hefur farið með hann til Kúveit þar sem hitinn fór upp í 52 gráður á dögunum. Dissinger, sem varð Evrópumeistari með Þýskalandi árið 2016, gekk til liðs við Kazma SC í Kuwait City í sumar. Hinn 34 ára gamli skytta segir að veðurskilyrðin hafi sett mark sitt á daglegt líf. „Núna er 45 stiga hiti hérna. Fyrir tíu dögum var hitinn 52 gráður. Sjórinn er um 36–37 gráðu heitur þannig að hann er heldur ekkert sérstaklega svalandi,“ sagði Dissinger í samtali við Handball-World. Hann hefur leikið með tólf félögum í átta löndum á ferlinum, meðal annars í Þýskalandi, Sviss, Norður-Makedóníu, Rúmeníu, Katar, Ungverjalandi og á Spáni. Dissinger fór ekki í felur með að fjárhagslegi þátturinn hefði ráðið miklu um ákvörðun hans að fara til Kúveit. „Peningarnir eru hluti af þessu og ég ætla alls ekki að fela það. Á öllum þeim stöðum sem ég hef leikið hef ég einnig öðlast frábæra reynslu utan handboltavallarins sem hefur víkkað sjóndeildarhring minn,“ sagði Dissinger sem lék á sínum tíma með THW Kiel, Dinamo Bucuresti og Vardar þar sem hann varð Evrópumeistari. Æfingar liðsins hefjast ekki fyrr en klukkan 19 á kvöldin þar sem heimamennirnir í leikmannahópnum sinna öðrum störfum á daginn. Dissinger segir breytinguna á sólarhringnum hafa verið stærstu áskorunina. „Maður þarf að tileinka sér allt annan sólarhring og það hefur verið stærsta breytingin. Það þarf að finna eitthvað til að gera fram að æfingu. Þetta er ekki slæmt en mjög óvenjulegt fyrir atvinnumann í handbolta,“ sagði Dissinger, sem upplifði sambærilegt fyrirkomulag þegar hann lék í Katar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.