
Í kvöld mættust Fjölnir og Afturelding í Grill 66 deild kvenna í Egilshöll. Fyrstu 10 mínútur leiksins var mikið jafnræði með liðunum en fljótt tóku gestirnir úr Mosfellsbæ góða rispu og náðu mest 5 marka forskoti og sýndu mátt sinn og megin. Hálfleikstölur voru 9-14 fyrir stelpurnar úr Mosó og leikurinn í góðu jafnvægi fyrir þær. Fljótlega í seinni hálfleik var forskotið orðið 8 mörk og úrslitin ráðin. Fjölnis stúlkur klóruðu þó ágætlega í bakkann og minnkuðu muninn í 3 mörk en nær komust þær ekki. Lokatölur 26-30 fyrir UMFA. Afturelding fær því fljúgandi start á deildinni og eru komnar með 3 sigra í röð. Hjá Aftureldingu var Katrín Helga Davíðsdóttir markahæst með 9 mörk. Ingibjörg Gróa varði 13 skot. Hjá Fjölni var Sara Kristín Pedersen markahæst með 7 mörk. Brynja og Sara Reykdal vörðu samtals 6 skot. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.