
Kent Robin Tönnesen yfirgefur þýska stórliðið Flensburg-Handewitt þegar samningur hans rennur út sumarið 2027. Ljubomir Vranjes, íþróttastjóri félagsins, staðfesti tíðindin í samtali við Handball-World. „Kent verður ekki hjá SG á næsta ári,“ sagði Vranjes, en Norðmaðurinn hefur þegar fengið skýr skilaboð frá félaginu um framtíð sína. Miklar breytingar verða á hægri skyttustöðunni hjá Flensburg sumarið 2027. Danski landsliðsmaðurinn Niclas Kirkeløkke gengur þá til liðs við Fredericia en Flensburg hefur þegar samið við Viggó Kristjánsson og Portúgalann, Francisco Costa. Framtíð þýska landsliðsmannsins Luca Witzke er aftur á móti óráðin. Samningur hans rennur einnig út árið 2027 en hann glímir nú við alvarleg meiðsli. Flensburg ætlar að bíða fram í janúar áður en ákvörðun verður tekin um framhaldið. „Fyrst viljum við sjá Luca ná heilsu og fá mínútur inni á vellinum. Síðan skoðum við stöðuna hans í janúar,“ sagði Vranjes. Auk Viggós og Francisco Costa hafa félagið samið við Martim Costa og Victor Klöve. Vranjes útilokar þó ekki frekari viðbætur, einkum í hornunum og á línunni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.