Tveir leikir fóru fram í þýsku Bundesligunni í kvöld og réðust þeir báðir á lokasekúndunum. THW Kiel vann nauman útisigur á Eisenach, 28–27, og Stuttgart lagði Balingen að velli, 29–28. Kiel hefur þar með unnið alla fimm leiki sína í upphafi tímabilsins og er með fullt hús stiga. Leikur Eisenach og Kiel var jafn og spennandi frá upphafi. Kiel náði nokkrum sinnum þriggja marka forskoti í fyrri hálfleik en heimamenn komu alltaf til baka og staðan var jöfn í hálfleik, 14–14. Eisenach byrjaði síðari hálfleikinn af krafti og komst þremur mörkum yfir, 19–16. Kiel átti meðal annars í miklum vandræðum á vítalínunni og klikkaði á þremur vítaköstum. Kiel náði hins vegar að snúa leiknum sér í hag á lokakaflanum. Elias Ellefsen á Skipagøtu kom liðinu í 27–25 þegar þrjár mínútur voru eftir en Eisenach jafnaði í 27–27 þegar rúm mínúta lifði leiks. Emil Madsen skoraði sigurmark Kiel skömmu síðar og Gonzalo Pérez de Vargas varði síðustu tilraun Felix Aellen þegar nokkrar sekúndur voru eftir. Lukas Zerbe var markahæstur hjá Kiel með sex mörk en Elias skoraði þrjú. Pérez de Vargas varði tíu skot. Aellen skoraði sex mörk fyrir Eisenach. Mikil dramatík var einnig í viðureign Balingen og Stuttgart. Staðan var jöfn í hálfleik, 14–14, og liðin skiptust á að hafa forystuna í síðari hálfleik.Stuttgart komst í 27–23 þegar rúmar sex mínútur voru eftir en nýliðar Balingen gáfust ekki upp og Yonatan Dayan jafnaði metin í 28–28 þegar um mínúta lifði leiks. Mohamed Amine Darmoul reyndist hetja Stuttgart þegar hann skoraði sigurmarkið í blálokin og tryggði liðinu 29–28 sigur. Kai Häfner fór mikinn í liði Stuttgart og skoraði ellefu mörk. Csaba Leimeter var markahæstur hjá Balingen með sex mörk. Stuttgart er nú með fimm stig eftir fyrstu fimm leikina. Balingen byrjaði tímabilið með tveimur sigrum en hefur nú tapað þremur leikjum í röð. Úrslit kvöldsins: Balingen–Stuttgart 28–29 (14–14)
Eisenach–THW Kiel 27–28 (14–14)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.