
Þriðju umferð Meistaradeildar kvenna lauk á sunnudag og nú eru aðeins fimm lið eftir sem hafa unnið alla leiki sína. FTC, Esbjerg og Brest eru með fullt hús í A-riðli á meðan ríkjandi Evrópumeistarar Metz og Györ hafa unnið alla þrjá leiki sína í B-riðli. Stærstu tíðindi helgarinnar komu þó frá Þýskalandi þar sem Dortmund vann upp níu marka forskot gegn CSM Búkaresti og fagnaði ótrúlegum 35:32 sigri. Nykøbing Falster náði sínum fyrsta sigri með 31:26 sigri á HSG Blomberg-Lippe, Gloria Bistrita hafði betur gegn Odense í leik umferðarinnar og Brest þurfti að hafa fyrir hlutunum gegn Buducnost í fyrsta leik Maju Savic við stjórnvölinn. A-RIÐILL Dortmund 35:32 CSM Búkaresti – ótrúleg endurkoma heimakvenna CSM Búkaresti mætti til leiks með fullt hús og besta sóknarleik keppninnar eftir fyrstu tvær umferðirnar. Rúmenska stórliðið sýndi styrk sinn strax frá upphafi. Emma Friis skoraði fjögur mörk á fyrstu sjö mínútunum og CSM komst í 5:2. Þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður var munurinn orðinn fimm mörk, 10:5, og gestirnir héldu áfram að bæta við. CSM leiddi 20:13 í hálfleik og komst síðan níu mörkum yfir, 22:13, snemma í þeim síðari. Þá gjörbreyttist leikurinn. Dortmund skoraði þrjú mörk í röð og Nicole Wiggins fór að verja í marki heimakvenna. Sjálfstraustið jókst með hverri sókn og á milli 33. og 46. mínútu vann Dortmund ótrúlegan 11:2 kafla og skyndilega var staðan 24:24. Mareike Thomaier kom Dortmund síðan yfir í fyrsta sinn, 27:26, og heimakonur neituðu að sleppa takinu. CSM fann engin svör við breyttum varnarleik Dortmund og þýska liðið kláraði eina ótrúlegustu endurkomu tímabilsins. Lokatölur 35:32 og fyrsti sigur Dortmund á CSM í sögu Meistaradeildarinnar staðreynd. Um leið lauk sjö leikja sigurgöngu Dortmund án sigurs í keppninni. Thomaier var markahæst Dortmund með sjö mörk. Emma Friis, Valeriia Maslova og Crina Pintea skoruðu sex mörk hver fyrir CSM. Sola 25:28 FTC – Norðmennirnir gerðu toppliðinu erfitt fyrir Angela Malestein og Elizabeth Omoregie komu FTC vel af stað og gestirnir komust í 5:2. Sola lét það hins vegar ekki slá sig út af laginu. Rikke Granlund varði vel og heimakonur söxuðu jafnt og þétt á forskotið þar til staðan var orðin 10:10 á 26. mínútu. FTC náði aftur frumkvæðinu fyrir hlé og leiddi 14:13 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Camilla Herrem kom Sola síðan yfir, 15:14, snemma í síðari hálfleik og við tók jafn leikur þar sem liðin skiptust á að hafa frumkvæðið. Breiddin hjá FTC reyndist að lokum mikilvæg. Enginn leikmaður liðsins skoraði meira en fjögur mörk en markaskorunin dreifðist vel og Anna Kristensen var sterk í markinu með ellefu varin skot. Þegar níu mínútur voru eftir hafði FTC náð 24:20 forskoti og hélt heimakonum síðan í hæfilegri fjarlægð og unnu að lokum þriggja marka sigur 28-25. Júlia Hársfalvi, Elizabeth Omoregie, Lysa Tchaptchet, Angela Malestein og Petra Simon skoruðu fjögur mörk hver fyrir FTC en Malin Holta var markahæst Sola með sex. Krim 31:37 Esbjerg – Reistad óstöðvandi og sögulegt mark Krim komst í 2:1 en það reyndist eina forysta slóvenska liðsins allan leikinn. Reistad og Live Rushfeldt Deila tóku fljótlega stjórn á sóknarleik Esbjerg og norska tvíeykið skoraði saman 14 mörk í fyrri hálfleik. Danska liðið leiddi 20:16 að honum loknum. Esbjerg mætti síðan af miklum krafti til síðari hálfleiks og skoraði fyrstu fimm mörkin. Munurinn jókst í tíu mörk, 29:19, og skömmu síðar kom Reistad Esbjerg tólf mörkum yfir, 31:19. Krim lagaði stöðuna á lokakaflanum en sigur Esbjerg var aldrei í hættu. Reistad lauk leik með 13 mörk úr 15 skotum og var markahæst allra leikmanna á laugardeginum. Hún sá jafnframt um sögulegt augnablik á 43. mínútu þegar hún skoraði 4.000. mark Team Esbjerg í Meistaradeildinni. Ana Abina, Anne Johansen og Liana Vukovic skoruðu fimm mörk hver fyrir Krim. Buducnost 22:27 Brest – Savic byrjaði með tapi Buducnost sýndi þó allt annan svip en í fyrstu tveimur umferðunum. Leikurinn var hnífjafn fyrstu 25 mínúturnar og Brest náði aldrei meira en þriggja marka forskoti í fyrri hálfleik. Floriane André reyndist franska liðinu afar mikilvæg og var með 50 prósenta markvörslu þegar komið var að hálfleik. Brest leiddi 13:10 þegar flautað var til hálfleiks. Buducnost kom af krafti inn í síðari hálfleikinn og minnkaði muninn í eitt mark, 16:15, á fyrstu átta mínútunum. Franska liðið náði tveimur 3:0 köflum og þegar tíu mínútur voru eftir var staðan orðin 23:16. Þar með voru úrslitin að mestu ráðin. Brest vann að lokum 27:22 og hefur því unnið alla þrjá leiki sína. Djurdjina Jaukovic var langmarkahæst Buducnost með níu mörk en Tamara Horacek skoraði sex fyrir Brest. B-RIÐILL Podravka 24:35 Metz – meistararnir stungu af eftir hlé Podravka byrjaði betur og komst í 4:2. Lucija Bešen varði vel og á tíma var hún með nálægt 50 prósenta markvörslu. Heimakonur leiddu 7:5 eftir tólf mínútur en Sabrina Novotná fór þá að finna taktinn í marki Metz. Vörslur hennar hjálpuðu gestunum í 4:0 kafla og Metz náði forystunni. Podravka hélt þó áfram að berjast og Metz leiddi aðeins 12:11 í hálfleik. Allt annað Metz-lið virtist mæta út úr klefanum í seinni hálfleik. Vörnin varð mun sterkari og Manon Errard fór fyrir 4:0 kafla sem kom Metz í 16:12. Podravka minnkaði muninn um stund en þegar síðari hálfleikur var hálfnaður var Metz komið í 23:17. Eftir það var aðeins spurning hversu stór sigurinn yrði. Metz vann 35:24 og er nú ósigrað í tólf Meistaradeildarleikjum í röð. Errard var markahæst Metz með átta mörk úr níu skotum en Katarina Pandža skoraði sex fyrir Podravka. Storhamar 20:30 Györ – ungverska stórveldið of sterkt Staðan var 6:6 eftir ellefu mínútur en þá fór Györ að ná yfirhöndinni. Gestirnir komust í 13:10 áður en þær stungu endanlega af og breyttu stöðunni í 18:10. Tjaša Stanko fór fyrir sóknarleiknum og Zsófi Szemerey var sterk í markinu. Györ leiddi 20:13 í hálfleik. Síðari hálfleikurinn var ekki jafn sannfærandi. Györ skoraði ekki fyrstu sex mínúturnar og Storhamar nýtti sér það til að minnka muninn í 23:19. En það reyndist þór aðeins tímabundið því Györ þurfti aðeins fimm mínútur til að endurheimta forskotið og vann að lokum með tíu mörkum. Þetta var annar leikurinn í röð þar sem liðið vinnur með tíu mörkum eftir 35:25 sigurinn á Nykøbing. Helena Elver átti frábæran leik og skoraði níu mörk úr ellefu skotum. Christina Pedersen var markahæst Storhamar með fimm. Nykøbing 31:26 Blomberg-Lippe – Díana með þrjú mörk Bæði lið voru að leita að fyrsta sigrinum og það sást á leiknum frá fyrstu mínútu. Nykøbing byrjaði betur og náði tveggja marka forskoti eftir ellefu mínútur, en Blomberg svaraði og komst yfir í fyrsta sinn á 21. mínútu. Forystan entist þó ekki lengi og Nykøbing fór með eins marks forskot inn í hálfleikinn, 15:14. Heimakonur náðu síðan betri tökum á leiknum eftir hlé. Moa Högdahl, Clara Lerby, Mia Svele og Maja Magnussen báru stóran hluta sóknarleiks Nykøbing og skoruðu fyrstu 19 mörk liðsins. Danska liðið náði þriggja marka forskoti og Blomberg þurfti í kjölfarið stöðugt að elta. Þýsku meistararnir héldu sér lengi inni í leiknum en Nykøbing reyndist sterkara á lokakaflanum og tryggði sér að lokum 31:26 sigur. Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum fyrir Blomberg og var með 75 prósenta skotnýtingu. Hún fylgdi þar með eftir fimm marka leik sínum gegn Storhamar í síðustu umferð og er komin með átta mörk í síðustu tveimur leikjum Meistaradeildarinnar. Elín Rósa Magnúsdóttir kom einnig við sögu hjá Blomberg. Hún skoraði ekki úr einu skoti en lagði upp tvö mörk fyrir liðsfélaga sína. Nuria Bucher var markahæst Blomberg með sjö mörk en Nieke Kühne skoraði sex. Hjá Nykøbing hélt Clara Lerby áfram frábærri byrjun sinni á tímabilinu og skoraði níu mörk úr tíu skotum. Nykøbing er þar með komið með þrjú stig eftir þrjár umferðir, en Blomberg hefur tapað öllum þremur leikjum sínum á sínu fyrsta tímabili í Meistaradeildinni. Gloria Bistrita 29:27 Odense – Eriksson lokaði markinu þegar mest á reyndi Gloria byrjaði betur í sínum fyrsta heimaleik í Meistaradeildinni á tímabilinu og náði fljótt frumkvæðinu. Odense jafnaði í 6:6 en Evelina Eriksson fór að verja og heimakonur nýttu sér það til að byggja upp fimm marka forskot. Danska liðið neitaði þó að gefast upp. Helene Fauske og Viola Leuchter komu Odense aftur inn í leikinn og í hálfleik munaði aðeins einu marki, 15:14. Odense breytti síðan sóknarleiknum og fór í sjö gegn sex. Það skilaði árangri framan af síðari hálfleik og danska liðið sneri leiknum við og komst í 22:20. Nokkrar ótímabærar sóknir gáfu Gloria auðveld mörk í autt netið og heimakonur svöruðu með fjórum mörkum í röð. Skyndilega var staðan orðin 24:22 fyrir Gloria þegar tíu mínútur voru eftir. Spennan hélst fram á lokamínúturnar en Eriksson varði mikilvægt skot þegar mest á reyndi áður en Asuka Fujita innsiglaði sigurinn. Gloria vann 29:27 og Odense tapaði þar með í fyrsta sinn á tímabilinu. Johanna Reichert var markahæst Gloria með sjö mörk en Elma Halilcevic og Viola Leuchter skoruðu sex hvor fyrir Odense. Eriksson var valin maður leiksins eftir 14 varin skot og 35 prósenta markvörslu.
Fátt benti til þess í hálfleik að Borussia Dortmund væri á leiðinni að ná í sín fyrstu stig á tímabilinu.
FTC vann sinn þriðja leik í röð en ungverska liðið þurfti að hafa verulega fyrir 28:25 sigri á Sola í Noregi.
Henny Reistad fór á kostum þegar Esbjerg vann sinn þriðja leik í röð með 37:31 sigri á Krim í Ljubljana.
Maja Savic stýrði Buducnost í fyrsta sinn eftir þjálfaraskiptin í vikunni en Brest Bretagne reyndist of sterkt og vann 27:22.
Podravka veitti ríkjandi Evrópumeisturum Metz harða keppni í 30 mínútur en franska stórliðið sýndi styrk sinn eftir hlé og vann að lokum með ellefu mörkum, 35:24.
Storhamar hélt í við Györ framan af en ungverska stórliðið sýndi síðan hvers vegna það er á meðal allra sterkustu liða Evrópu og vann öruggan 30:20 sigur í Noregi.
Nykøbing Falster fagnaði sínum fyrsta sigri á tímabilinu þegar liðið lagði HSG Blomberg-Lippe 31:26 í Danmörku. Blomberg bíður hins vegar enn eftir sínum fyrstu stigum í Meistaradeildinni eftir þrjár umferðir.
Leikur umferðarinnar stóð undir væntingum þegar Gloria Bistrita tók á móti Odense í Rúmeníu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.