Ragnar með 10 mörk í öruggum sigri Selfyssinga
HSB PHOTO

Í dag mættust Selfoss 2 og Valur 2 í Grill 66 deild karla en leikið var á Selfossi.

Fyrstu 10-12 mínútur leiksins voru mjög jafnar en þá tók Selfoss leikinn aðeins yfir. Komust þeir fljótlega 4 mörkum yfir en hálfleikstölur voru síðan 16-14 fyrir heimamenn.

Fyrstu 10 mínúturnar í seinni hálfleik var leikurinn í góðu jafnvægi en eftir það fóru Selfyssingar að slíta sig frá Völsurunum. Komust þeir mest 10 mörkum yfir og enduðu á að sigra leikinn með 9 mörkum.

38-29 urðu lokatölur fyrir heimamenn í Selfossi.

Hjá Selfoss 2 var Ragnar Hilmarsson markahæstur með 10 mörk. Garðar og Egill vörðu samtals 14 skot.

Hjá Val 2 var Sigurður Atli Ragnarsson markahæstur með 8 mörk. Anton Máni og Arnór Flóki vörðu samtals 8 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top