Sigurgeir Jónsson, betur þekktur sem Sissi, er hættur störfum sem aðstoðarþjálfari kvennaliðs Vals. Félagið greindi frá tíðindunum í kvöld. Sigurgeir hefur verið aðstoðarþjálfari Vals undanfarin tvö ár og var því hluti af þjálfarateymi liðsins á síðasta tímabili þegar Valur varð Íslands-, deildar- og bikarmeistari. Hann starfaði fyrst við hlið Ágústs Jóhannssonar en hélt áfram sem aðstoðarþjálfari þegar Anton Rúnarsson tók við liðinu fyrir síðasta tímabil. Brotthvarf Sigurgeirs kemur eins og þruma úr heiðskýru lofti þar sem tímabilið er rétt farið af stað. Kvennalið Vals hefur átt erfiða byrjun á yfirstandandi tímabili. Íslandsmeistararnir hafa aðeins unnið einn af fyrstu þremur leikjum sínum í Olís-deildinni og töpuðu auk þess stórt gegn Haukum í Meistarakeppni HSÍ áður en deildarkeppnin hófst. Valur hefur því ekki náð þeirri flugferð sem liðið var á síðasta vetur þegar það sópaði að sér öllum þremur stóru titlunum hér heima. Ekki kemur fram í tilkynningu Vals hver taki við starfi Sigurgeirs eða hvort breytingar verði gerðar á þjálfarateymi liðsins í kjölfarið. Óskar Bjarni Óskarsson var kominn inn í þjálfarateymi kvennaliðsins og fær nú líklega stærra hlutverk innan þjálfarateymisins. „Sissi hefur verið frábær félagi, þjálfari og unnið ómetanlegt starf fyrir félagið. Við óskum honum góðs gengis á nýjum vettvangi,“ segir meðal annars í tilkynningu Vals en samkvæmt heimildum Handkastsins var Sigurgeiri sagt upp störfum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.