Bahrain Asíuleikameistari – Aron og lærisveinar í fimmta sæti
Asian Handball Federation / Asian Games

Bahrain tryggði sér gullverðlaun á Asíuleikunum í Aichi-Nagoya eftir æsispennandi sigur á Katar í úrslitaleik, 33-32.

Bahrain, undir stjórn Svíans Roberts Hedin, hafði betur gegn heimamönnum í Japan í undanúrslitum, 35-31, eftir að staðan hafði verið jöfn, 16-16, í hálfleik. Katar, sem Veselin Vujovic stýrir, tryggði sér sæti í úrslitaleiknum með 32-30 sigri á Suður-Kóreu.

Úrslitaleikurinn var síðan æsispennandi en Bahrain hafði að lokum betur með minnsta mun, 33-32, og tryggði sér þar með gullverðlaunin.

Japan náði í bronsið á heimavelli eftir 37-32 sigur á Suður-Kóreu í leiknum um þriðja sætið.

Aron Kristjánsson stýrði Kúveit á mótinu en liðið hafnaði í fimmta sæti. Aron þekkir vel til hjá Bahrain enda stýrði hann landsliði þjóðarinnar um árabil og náði góðum árangri með liðið.

Aron og lærisveinar hans í Kúveit koma til Íslands í janúar þar sem liðið leikur tvo vináttulandsleiki gegn íslenska landsliðinu. Leikirnir verða hluti af undirbúningi liðanna fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer síðar í janúar.

Lokastaðan á Asíuleikunum:

  1. Bahrain
  2. Katar
  3. Japan
  4. Suður-Kórea
  5. Kúveit
  6. Kína
  7. Íran
  8. Hong Kong-Kína
  9. Kasakstan

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top