Sigurganga Hauka heldur áfram eftir stórsigur á Víkingi
Jón Gautur Fótó

Haukar unnu sinn fimmta sigur í jafnmörgum leikjum í Olís-deild karla þegar þeir lögðu Víking að velli, 38–29, á heimavelli í kvöld. Haukar voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 16–14, en náðu að slíta gestina frá sér eftir hlé.

Heimamenn byrjuðu betur og komust í 9–4. Víkingar unnu sig hins vegar aftur inn í leikinn og minnkuðu muninn í eitt mark undir lok fyrri hálfleiks. Haukar gengu þó til búningsklefa með tveggja marka forskot.

Haukar náðu aftur betri tökum á leiknum í upphafi síðari hálfleiks en Víkingar héldu sér í seilingarfjarlægð og staðan var 26–23 þegar leið á hálfleikinn. Þá skoruðu Haukar fimm af næstu sex mörkum og komust í 31–24. Eftir það var sigur þeirra aldrei í hættu og lokamunurinn níu mörk.

Freyr Aronsson var markahæstur Hauka með átta mörk. Skarphéðinn Ívar Einarsson skoraði sjö, Birkir Snær Steinsson sex og Andri Fannar Elísson fjögur. Grétar Ari Guðjónsson varði níu skot í marki Hauka og Ari Dignus Maríuson tvö.

Hjá Víkingi var Sigurður Páll Matthíasson markahæstur með sjö mörk. Ísak Óli Eggertsson og Kristján Helgi Tómasson skoruðu fimm hvor og Þorgeir Bjarki Davíðsson fjögur. Daði Bergmann Gunnarsson varði sjö skot og skoraði auk þess eitt mark.

Haukar sitja á toppi deildarinnar með tíu stig eftir fimm umferðir, tveimur stigum á undan KA. Víkingur er í tíunda sæti með tvö stig.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top