Fram vann sinn fjórða sigur í röð í Olís-deild kvenna þegar liðið tók á móti Selfossi í kvöld. Lokatölur urðu 21–17 eftir að Fram hafði leitt 11–9 í hálfleik. Um var að ræða fyrsta leikinn í 4.umferð Olís-deildarinnar. Fram er því á toppi deildarinnar með átta stig eftir fjóra leiki. Selfoss er með tvö stig eftir fjóra leiki og hefur tapað þremur leikjum í röð eftir sigurinn á Val í fyrstu umferð. Selfoss byrjaði betur og komst í 2–0 og síðar 5–3. Fram náði hins vegar undirtökunum þegar leið á fyrri hálfleikinn og skoraði fjögur mörk í röð eftir stöðuna 7–7. Heimakonur náðu þannig fjögurra marka forskoti en Selfoss minnkaði muninn í tvö mörk fyrir hlé. Í síðari hálfleik komst Fram meðal annars í 15–10 og 18–13. Selfoss gafst þó ekki upp og minnkaði muninn í 19–17 þegar tæpar fjórar mínútur voru eftir. Gestirnir skoruðu hins vegar ekki aftur og Katrín Anna Ásmundsdóttir og Sóldís Rós Ragnarsdóttir tryggðu Fram fjögurra marka sigur með síðustu tveimur mörkum leiksins. Katrín Anna Ásmundsdóttir var markahæst hjá Fram með sjö mörk. Harpa María Friðgeirsdóttir skoraði fjögur en Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir og Sóldís Rós Ragnarsdóttir þrjú hvor. Hjá Selfossi var Hulda Dís Þrastardóttir markahæst með sex mörk. Hulda Hrönn Bragadóttir skoraði fjögur og Perla Ruth Albertsdóttir þrjú. Markverðir liðanna létu einnig að sér kveða. Ethel Gyða Bjarnasen varði 14 skot hjá Fram og Selma Þóra Jóhannsdóttir jafnmörg hjá Selfossi. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.