Hákon Daði með 17 mörk í 18 marka sigri gegn Fram
Egill Bjarni Friðjónsson

Marel Baldvinsson sneri aftur í lið Fram eftir langa fjarveru vegna meiðsla þegar liðið tók á móti Aftureldingu í Olís-deild karla í kvöld. Marel skoraði þrjú mörk en endurkoman féll í skuggann af yfirburðasigri gestanna, 42–24.

Framarar voru yfir 4–3 í upphafi leiks en Mosfellingar tóku þá við sér og skoruðu fjögur mörk í röð. Afturelding jók forskotið jafnt og þétt og leiddi með sjö mörkum í hálfleik, 22–15.

Gestirnir héldu áfram að bæta við forskotið eftir hlé og komust í 27–16. Framarar áttu fá svör og Afturelding vann síðari hálfleikinn 20–9 og þar með átján marka sigur.

Hákon Daði Styrmisson fór á kostum og skoraði 17 mörk fyrir Aftureldingu. Oscar Lykke bætti við níu mörkum og skoruðu þeir því saman 26 mörk, tveimur fleiri en allt lið Fram. Sigurjón Bragi Atlason varði 18 skot í marki gestanna eftir að Einar Baldvin Baldvinsson fann sig enganveginn í marki Aftureldingar í upphafi leiks.

Haukur Ingi Hauksson var markahæstur hjá Fram með fjögur mörk. Dagur Fannar Möller, Kristján Pétur Barðason og Marel Baldvinsson skoruðu þrjú mörk hver. Stefán Freyr Jónsson varði tíu skot og Jóhann Ágústsson eitt.

Þriðja tap Framara í röð staðreynd en Mosfellingar eru með sjö stig í 3.sæti deildarinnar að loknum fimm leikjum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top