Tveir leikmenn kvennaliðs Víkings í Grill 66-deildinni, Ane-Sofiannguaq Frederiksen og Ivâna Meincke Zeeb, hafa verið valdar í 17 manna landsliðshóp Grænlands fyrir æfingamót í París. Grænlenska landsliðið er í undirbúningi fyrir komandi undankeppni heimsmeistaramótsins og heldur nú til Frakklands þar sem liðið leikur þrjá æfingaleiki á jafnmörgum dögum. Grænland mætir Marokkó og Bandaríkjunum, auk þess sem liðið leikur gegn U19 ára landsliði Frakklands. Jakob Larsen landsliðsþjálfari og aðstoðarmaður hans, Kim O. Petersen, hafa valið 17 leikmenn til fararinnar. Ane-Sofiannguaq Frederiksen og Ivâna Meincke Zeeb leika báðar með Víkingi hér á landi og eru einu leikmenn hópsins sem leika á Íslandi. Í hópnum eru annars leikmenn frá Grænlandi og Danmörku.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.