Liðin geta öll hrifsað stig hvert af öðru
Sævar Jónasson

Fram hefur farið fullkomlega af stað í Olís-deild kvenna og er með fullt hús stiga eftir fyrstu fjóra leiki tímabilsins. Haraldur Þorvarðarson, þjálfari Fram, er sérstaklega ánægður með varnarleik liðsins en segir enga ástæðu til að lesa of mikið í stöðuna í deildinni svo snemma tímabils.

Fram hefur unnið alla fjóra leiki sína til þessa og safnað átta stigum af átta mögulegum. Haraldur segir sterkan varnarleik hafa lagt grunninn að góðri byrjun liðsins.

„Okkur hefur tekist að spila fína vörn á stórum köflum í þessum leikjum sem oft skilar okkur hraðaupphlaupum og ég er kannski ánægðastur með það.“

Framliðið hefur tekið breytingum og segir Haraldur vinnuna við að slípa hópinn saman ganga ágætlega. Metnaðurinn innan hópsins sé mikill.

„Það gengur bærilega að slípa liðið saman. Stelpurnar eru duglegar og metnaðarfullar og vilja ná langt þannig að það eru allir að róa í sömu átt sem mun vonandi skila sér inn í mótið.“

Haraldur segist ekki hafa séð margt óvænt í Olís-deildinni á fyrstu vikum tímabilsins. Jafnræðið sé hins vegar mikið og telur hann að ekkert lið geti leyft sér að mæta til leiks á hálfum hraða.

„Komið á óvart? Nei, held ekki. Svipað og maður bjóst við svo sem. Það þarf að vera á tánum í öllum leikjum og aldrei leyfa sér að slaka á í einu né neinu ef ekki á að fara illa. Liðin geta öll hrifsað stig hvert af öðru held ég.“

Fram á næst fyrir höndum Reykjavíkur­slag gegn Val í 5.umferð deildarinnar og þrátt fyrir góða byrjun liðsins gerir Haraldur ekki ráð fyrir öðru en erfiðri viðureign. Liðin mætast í Úlfarsárdalnum á laugardaginn klukkan 14:30.

„Sá leikur leggst bara vel í mig eins og flestir leikir. Verðugur andstæðingur og við leggjum okkur öll fram til að ná góðum úrslitum í þessari viðureign eins og öðrum.“

Haraldur vill jafnframt lítið gera úr því hvaða lið sitja hvar í töflunni eftir aðeins fjórar umferðir.

„Mótið er nýbyrjað og staða liða núna á eftir að breytast í töflunni. Ég geri ekki ráð fyrir töluvert erfiðari leikjum, ég geri bara ráð fyrir erfiðum leikjum eins og flestir þessara leikja sem búnir eru.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top