Styttist í að stigin komi
HK handbolti

Nýliðar HK eru enn án stiga eftir fyrstu fjórar umferðir Olís-deildar kvenna en Dagur Snær Steingrímsson, þjálfari liðsins, segir frammistöðuna gefa ástæðu til bjartsýni. Hann telur stigin vera skammt undan haldi liðið áfram að bæta sig.

HK og KA/Þór eru einu liðin sem enn hafa ekki náð í stig á tímabilinu. HK hefur hins vegar mætt fjórum af þeim liðum sem nú sitja í efstu fjórum sætum deildarinnar og Dagur Snær telur byrjun liðsins betri en stigataflan gefur til kynna.

„Okkar byrjun í mótinu hefur verið ágæt þó svo að stigin hafi ekki dottið inn gegn þessum topp fjórum liðum í töflunni núna. Mér hefur fundist stígandi í okkar leik á báðum endum vallarins.“

HK tapaði fyrir Haukum og ÍBV þar sem erfið byrjun í báðum leikjum gerði þeim erfitt fyrir en liðið var nær því að fá eitthvað út úr leikjunum gegn ÍR og Fram sem töpuðust einnig.

„Leikirnir hafa kannski verið keimlíkir en gegn Haukum og ÍBV byrjum við illa sem reyndist okkur dýrkeypt þó svo að við náum að koma okkur aftur inn í báða leikina. Svo löbbum við frá leikjunum við ÍR og Fram bara drullusvekktar að taka ekki að minnsta kosti stig út úr báðum leikjum.“

Þrátt fyrir að fyrsta stigið láti enn bíða eftir sér segir Dagur frammistöðuna í fyrstu leikjunum hafa aukið sjálfstraustið innan hópsins.

„Það sem við höfum sýnt í þessum leikjum gefur okkur bara sjálfstraust fyrir framhaldið.“

Framundan eru afar mikilvægir leikir fyrir nýliðana. HK heimsækir Stjörnuna í Garðabæ í næstu umferð en Stjarnan er með tvö stig. Þar á eftir bíður leikur gegn Selfossi. Dagur segir nálgun HK þó ekkert breytast þrátt fyrir að næstu leikir séu gegn liðum sem eru nær HK í stigatöflunni.

„Okkar nálgun breytist ekkert fyrir næstu leiki gegn Stjörnunni og Selfossi. Okkar fókus verður áfram að bæta okkur æfingu frá æfingu, leik frá leik og ná fram bestu mögulegu frammistöðu á leikdegi. Þá styttist í að stigin komi, sama gegn hverjum við spilum.“

Dagur Snær var ekki á hliðarlínunni þegar HK tók á móti ÍBV í síðustu umferð. Davíð Elí Heimisson og Hákon Bridde stýrðu liðinu í fjarveru hans. Ástæðan fyrir fjarveru Dags var einföld en hann er staddur erlendis með dóttur sinni.

„Ég er og var staddur erlendis með dóttur minni í aðgerð sem gekk vel og kem vonandi bara heim fyrr en seinna.“ Dagur bætti við að hann vonist til þess að vera kominn aftur á hliðarlínuna á sunnudaginn þegar HK heimsækir Stjörnuna í lokaleik 5. umferðar Olís-deildarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top