FH og Fram mættust í Kaplakrika í kvöld í Powerade bikar karla. FH var með yfirhöndina í fyrri hálfleik og voru fjórum mörkum yfir í hálfleik, 23-19. Hafnfirðingar gáfu ekkert eftir í síðari hálfleik og vann liðið ellefu marka sigur en lokatölur voru 46-35 og FH verður í pottinum þegar dregið verður í næstu umferð. Atkvæðamestur í liði FH var Símon Michael Guðjónsson en hann skoraði ellefu mörk í kvöld. Ómar Darri Sigurgeirsson fylgdi Símoni á eftir með tíu mörk. Jón Þórarinn Þorsteinsson stóð í marki FH í kvöld og varði fimmtán bolta. Atkvæðamestur í liði Fram var Haukur Ingi Hauksson en hann skoraði sex mörk. Ívar Logi Styrmisson og Marel Baldvinsson skoruðu fimm mörk hvor og aðrir minna. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.